Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Ég sá ljósið

Ég var búinn að bíða dögum saman við póstkassann eftir sendli frá Reykjavíkurborg með miða handa mér á súlugillið. Því miður virðist miðinn minn hafa týnst á leiðinni. Þegar ljóst var hvert stefndi, laust eftir sjö á þriðjudaginn, skellti ég mér í skóna, setti soninn í stóru úlpuna yfir náttfötin og brunaði niðrí Sundagarða.

Bakþankar
Fréttamynd

Samkeppni minnkar vaxtamun

Þjónusta er mikilvægasti atvinnuvegur heims. Hefjum söguna 1971. Þá stóð þjónusta á bak við tæpan helming landsframleiðslunnar hér heima á móti röskum 60 prósentum í Bandaríkjunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ó Yoko!

Fírað verður upp í Friðarsúlu Yoko Ono við hátíðlega athöfn í Viðey í kvöld. Í fáein augnablik mun jákvæð athygli fjömiðla heimsins næra þjóðarstoltið og hlýja okkur dálítið um hjartaræturnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Svart á hvítu

Hvergi er meiri draugagangur og á netinu. Gamlar upplýsingar og hrekkir sveima þar um árum saman í óendanlegu tómarúmi. Virðast geta sest að í sálum fólks hvenær sem er og valdið ómældum ótta. Sífellt er verið að vara fólk við hvers kyns vá í gegnum tölvupósta og netskrif. Varnaðarorð leynast við hverja fingrasetningu.

Bakþankar
Fréttamynd

Íslenskt gullauga

Í allri hinni neikvæðu umræðu um okur, græðgi og einkavinavæðingu á Íslandi hefur gleymst að halda því til haga að íslenskur almenningur býr við mikil ókeypis hlunnindi. Til dæmis stendur hverjum sem er til boða að þamba nægju sína af köldu vatni úr næsta krana frítt og gratis.

Bakþankar
Fréttamynd

Nauðsynlegt að spyrna við fæti

Hvað er það sem fær ungan mann til að veitast að öðrum og beita hann alvarlegu ofbeldi, af litlu eða engu tilefni? Gerir þetta unga fólk sér ekki grein fyrir afleiðingum ofbeldisins eða ber það ekki virðingu fyrir náunga sínum?

Fastir pennar
Fréttamynd

Margt að ugga

Í sumar heyrðist stundum merkilegt lag í útvarpinu með hljómsveitinni Hjaltalín. Maður tók strax eftir því út af sérkennilegum hljómi, grípandi laglínu og knýjandi takti. Það heitir Goodbye July/Margt að ugga og ég veit ekkert um hvað það er. En þegar ég heyrði það fannst mér það vera vitnisburður um stöðu íslenskunnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Klók viðskipti

Klaufagangur, baktjaldamakk og græðgi í aðdraganda að samruna Reykjavik Energy Invest (REI) og Geysis Green Energy (GGE), hefur orðið til að skyggja á mikilvægasta grundvallarmálið að baki hinu sameinaða félagi. Að minnsta kosti þá hlið sem snýr að eigendum Orkuveitu Reykjavíkur, íbúum höfuðborgarinnar og nágrannasveitarfélögunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Billjónsdagbók 7.10.2007

OMXI15 var 8.410,57, þegar nágranninn á Smáragötu birtist út á verönd að viðra púddultíkina, og Nasdaq var 2.729,43 þegar hann sagðist vera til viðræðu um að selja mér húskofann sinn fyrir 300 millur. Púddultíkin væri innifalin í verðinu. Það fylgdi með henni ættartala. Sama væri ekki hægt að segja um konuna hans. Því miður.

Bakþankar
Fréttamynd

Maðkur

Því er oft haldið fram að á Íslandi sé lítil spilling. Þetta kann að vera rétt. Vísast eru fáir sem stunda myrkraverk eins og mútur og svoleiðis hér á landi, enda eru allir jú svo góðir vinir hvort sem er. Né heldur tel ég það algengt að fólk vakni upp við hlið afskorins hrosshauss í rúmi sínu, eins og í kvikmyndinni Godfather.

Bakþankar
Fréttamynd

Olía og vatn

Olía og vatn blandast illa. Sama lögmál gildir þegar reynt er að hræra saman opinberum rekstri og einkarekstri eða einokunarrekstri og samkeppnisrekstri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Leikskólavandamálið enn og aftur

Barnafólk í Grafarvogi er brjálað. Það kaus Sjálfstæðisflokkinn í hrönnum í síðustu kosningum, bæði til þings og borgarstjórnar, er trútt sínu liði, en er ekki til í að sleppa degi og degi úr vinnu lengur þótt leikskólar séu illa mannaðir þessi dægrin.

Fastir pennar
Fréttamynd

Safarík dagskrá

Það má gera því skóna að nokkrir hafi lagt frá sér ókláraða ábætisskál þegar Eva María Jónsdóttir spjallaði við Hrafnkel Sigurðsson í Kastljósviðtali á sunnudag. Lystarleysið má líklega tímasetja við augnablikið þar sem Hrafnkell lýsti „hugljómun" sinni á tíunda áratugnum.

Bakþankar
Fréttamynd

Hvar skal nú mjöllin?

Ja, hvar skal nú mjöllin frá liðnum vetri? orti franska skáldið François Villon: Mais où sont neiges d'antan? Snjórinn kemur og fer, hann er í senn árviss og hverfull. Hið sama er að segja um fullyrðingarnar, sem Stefán Ólafsson prófessor skellir fram fyrir hverjar kosningar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Markmiðin?

Framlag talsmanna stjórnarandstöðunnar í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra bar vott um ágæta snerpu. Hins vegar má ekki líta á þá sem eina heild. Staða hvers þeirra um sig er í eðli sínu ólík.

Fastir pennar
Fréttamynd

Munkar og skunkar

Ríkisstjórnir Norður-Kóreu og Kúbu eiga sitthvað sameiginlegt, þar á meðal þetta: önnur hefur hangið við völd með ofbeldi um margra áratuga skeið og ríghaldið fólkinu í ólýsanlegri fátækt fyrir velvild Kínverja, hin fyrir óvild Bandaríkjastjórnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Okur! Okur! Okur!

Á Íslandi er okrað. Þetta vita allir enda svíður venjulegu fólki í budduna oft á dag. Verð á flestu, ef ekki öllu, er hér dýrara en annars staðar. Hér vinna menn líka lengur en annars staðar en skulda samt meira en gengur og gerist í öðrum lödnum. Þetta er fáránlega ömurlegt ástand.

Bakþankar
Fréttamynd

Skýrt strik

Með sanni má segja að stefnuræða forsætisráðherra í gærkvöldi hafi fremur verið þung en þunneggjuð. Hún var laus við orðagjálfur og upphafningu. Forsætisráðherrann er stundum gagnrýndur fyrir skort á þessu tvennu. Í langhlaupi stjórnmálanna er slíkur skortur þó fremur styrkur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Boðun í skoðun

Í fyrradag hlotnaðist mér sá heiður að fá að vera viðstödd setningu Alþingis. Þrátt fyrir að vera almennt frekar léleg í uppskrúfuðu prótókolli varð ég að svala forvitninni og fylgjast með þessari virðulegu athöfn að minnsta kosti einu sinni.

Bakþankar
Fréttamynd

Framtíð og fortíð

Um þessar mundir eru kvikmyndahús í París að sýna Sicko eftir Michael Moore. Eins og þeir kannast við sem hafa séð þessa umtöluðu kvikmynd er hún breiðsíða gegn heilbrigðiskerfinu í Bandaríkjunum, ef kerfi skyldi kallast; hefst hún á atriði þar sem maður með nál og tvinna er að sauma saman sár á eigin skrokki, því hann hefur ekki efni á að leita til slysavarðstofu, og er þetta athyglisvert dæmi um það hvernig menn geta losnað úr fjárhagskröggum með því að stunda hannyrðir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kynlegur grautur

Ófullnægt og óhamingjusamt fólk eru bestu neytendur sem völ er á. Flestir þeirra sem nota tölvupóst kannast við kæfupóstinn sem rignir inn til manns alla daga. Fyrirsagnirnar eru venjulega loforð um stærra typpi, stinnari brjóst, minni bumbu, rass án appelsínuhúðar, stinnari maga eftir meðgöngu og innri frið.

Bakþankar
Fréttamynd

Bleikur október

Í októbermánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi. Þetta er áttunda árið í röð sem október­mánuði er varið með þessum hætti og tengist átakið alþjóðlegu árvekniátaki um brjóstakrabbamein.

Fastir pennar
Fréttamynd

Evra eða króna?

Íslendingar hafa notast við margs konar gjaldmiðil: Álnir vaðmáls, merkur silfurs, kúgildi, jarðarhundruð, ríkisdali, skildinga, spesíur, danskar krónur, íslenskar krónur og nú er talað um að prófa hvort evru muni fylgja meiri gæfa en krónu.

Bakþankar
Fréttamynd

Með styrkri stjórn

Við þessar aðstæður er komið upp tilvalið tækifæri fyrir annan ríkisstjórnarflokkinn að rifja upp orð sín um mikilvægi þess að styrkja löggjafarvaldið gegn framkvæmdarvaldinu þegar flokkurinn var enn í stjórnarandstöðu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Heiðra skaltu grunngildin

En það er bara eins og hver önnur skoðun á aðgerðum fólks í frjálsu landi, röng eða rétt eftir atvikum. Lögreglan á hins vegar ekki að hafa skoðun á réttmæti mótmælaaðgerða. Almennt á hún ekki að skipta sér af mótmælaaðgerðum nema greiða fyrir þeim og passa að þær fari ekki úr böndunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ógleymanlegt óminni

Einu sinni fékk ég launaseðil sem er mér afar eftirminnilegur. Þar var ég nefnilega minntur á að ég hefði þegið greiðslu fyrir að leika djass á ákveðnum veitingastað í Reykjavík og að mér bæri að borga af henni skatt.

Bakþankar