Banvænt faðmlag Leið Sjálfstæðisflokksins hefur legið niður á við í Reykjavík allt frá því Davíð Oddsson var hér vinsæll borgarstjóri. Aldrei hefur þó verið jafnilla fyrir flokknum komið í borginni eins og nú. Fastir pennar 3. júní 2008 09:00
Ferðalag í hundana Nákvæmlega klukkan 06.50 hvern virkan dag pípir síminn minn undur blíðlegt lag. Ekki þarf nema eitt skilvirkt handtak til að þagga niður í kvikindinu en nákvæmlega tíu mínútum seinna upphefur hann annað og grimmdarlegra garg sem kostar undantekningarlaust dálítið einvígi. Ég hamast við að reyna að sofa yfir mig en hann reynir staðfastlega að svipta heimilið næturkyrrðinni. Enn hefur mér því miður ekki tekist að kenna börnunum hversu unaðslegt það er að lúra lengur undir hlýrri sæng, heldur spretta þau upp eins og stálfjaðrir. Þar með er áreiti dagsins hafið fyrir alvöru. Bakþankar 3. júní 2008 05:00
Um hollan og óhollan félagsskap Í Bandaríkjunum er sagt að ekkert vandamál sé svo stórt að stjórnmálamenn í Washington geti ekki fundið leið til að slá því á frest. Þar vestra er líka sagt að maður geti séð hvenær stjórnmálamaður sé að segja ósatt, því að þá hreyfi hann/hún varirnar. Bakþankar 2. júní 2008 06:00
Greining og hættumat Kjartan Ólafsson hefur farið fram á það við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra að hann biðjist fyrir hönd ríkisins afsökunar á því að sími Kjartans og annarra var hleraður á sínum tíma. Björn hefur svarað því efnislega svo að dómur sögunnar sé fallinn. Kjartan og allt hitt fólkið hafi átt hleranirnar skilið. Fastir pennar 2. júní 2008 06:00
Grenjað á Bifröst Ég fór á Kvennaráðstefnu í vikunni með vinkonum mínum, nánar tiltekið á tengslanet á Bifröst þar sem um fjögur hundruð konur komu saman. Fyrst fór ég á þessa ráðstefnu fyrir þremur árum, með mömmu og yngri dóttur minni sem þá var næstum sex vikna. Bakþankar 1. júní 2008 06:00
Skjálftinn Þegar skjálftinn reið yfir á fimmtudaginn lá ég á nuddbekk. Nuddarinn hafði rétt þá nýverið lagst til atlögu við ógurlegan stirðleika í vöðvum á milli herðarblaðanna, með slíkum tilheyrandi sársauka að mér fannst það hreint og beint eðlilegt að allt skyldi fara af stað inni í herberginu, húsið skjálfa og gólfið ganga í bylgjum. Bakþankar 31. maí 2008 06:00
Krafin svars Í vetur spjallaði ég við leikskólakennara sem tjáði mér að hún ætti stundum í stökustu vandræðum með að svara spurningum barnanna þegar eilífðarmálin bæri á góma. Bakþankar 30. maí 2008 06:00
Réttur neytenda til að vera upplýstir Ólíkt því sem skyldað er í öðrum Evrópuríkjum þarf ekki að merkja hér á landi sérstaklega erfðabreytt matvæli. Um hættur þess að neyta erfðabreyttra matvæla er deilt. Framleiðendur segja að sjálfsögðu að erfðabreytt matvæli, eins og korn, maís og soja, séu í engu hættulegri en matvæli sem eru ekki erfðabreytt. Andstæðingar segja hins vegar að við erfðabreytinguna komi í ljós óvænt neikvæð áhrif, eins og ofnæmisviðbrögð, auk annarra hættna. Fastir pennar 29. maí 2008 06:00
Eftirlegukindur Margir virðast líta svo á, að innganga Íslands í ESB þurfi að bíða þess, að Sjálfstæðisflokkurinn sjái sig um hönd. Þessi skoðun hvílir á þeirri hugsun, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft stjórnarforustu fyrir þjóðinni nær allan lýðveldistímann og hann einn geti leitt Ísland inn í ESB líkt og hann leiddi Ísland inn í Nató á sínum tíma. Fastir pennar 29. maí 2008 06:00
Að stimpla sig út Í viku átti ég þess kost að lifa lífinu án þess að þurfa svo mikið sem einu sinni að leiða hugann að ruglinu í borgarstjórn, Ingibjörgu og Geir, sem eru ægilega sár að Stöð 2 skuli minna þau á gömul loforð, og öllu íslenska rausinu, tuðinu og vælinu sem hér flýtur hvarvetna um eins og notaðir smokkar í skítalæk. Bakþankar 29. maí 2008 06:00
Átján ára verðbólgumet Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stærðu sig af því nú um helgina að um áttatíu prósent stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar væri nú í höfn eða í góðum farvegi í viðkomandi ráðuneyti. Tilefnið var að meta samstarf ríkisstjórnarinnar eftir eitt ár. Fastir pennar 27. maí 2008 06:00
Sjálfsagður hlutur Sá tími er liðinn að fólk ráði sig hjá traustu fyrirtæki, vinni sig upp og starfi þar í áratugi, jafnvel þar til það fer á eftirlaun. Fólk vill gjarnan tilbreytingu, gerir kröfu um að vera ánægt í vinnunni og vill kannski mennta sig meira á miðjum aldri eða víkka sjóndeildarhringinn með því að vinna erlendis um tíma. Fastir pennar 27. maí 2008 06:00
Verðlagskönnun Þeir sem segja að ekki sé hægt að kaupa allt fyrir peninga eru að vanmeta mátt peninganna gróflega. Það er lafhægt að kaupa dauða yfir bæði einstaklinga og þjóðir. Bakþankar 26. maí 2008 10:00
Ljós í myrkri Frá síðustu haustdögum hefur fátt spurst úr ráðhúsi Reykvíkinga sem ástæða er til að fagna eða binda sérstakar vonir við um betri tíð með blóm í haga. Satt best að segja hefur hvílt skuggi yfir stjórnmálalífi höfuðborgarinnar. Fastir pennar 26. maí 2008 08:00
Arfur Melkorku Flóttamannavandamálið á Akranesi snýst ekki um það hver þau eru - heldur hver við erum. Hitt er svo aftur annað mál að það hvernig við erum mun hafa áhrif á hvernig þau verða. Sem aftur breytir okkur. Sem aftur breytir þeim... Fastir pennar 26. maí 2008 06:00
Gefum þeim dópið Í mörg ár hafa meginþættir baráttunnar við fíkniefnavandann hvílt á þremur stoðum: forvörnum, meðhöndlun og löggæslu. Nú er kominn tími til að bæta við þeirri fjórðu: að lágmarka skaðann. Fastir pennar 25. maí 2008 08:00
Skömm Skagans Ég er alinn upp við að þar sem sé hjartarúm sé húsrúm. Að okkur beri að hjálpa hvert öðru. Að enginn sé svo aumur að hann geti ekki hjálpað þeim sem eru enn aumari og að öllum beri að leggja sitt af mörkum til að gera heiminn að aðeins betri stað fyrir alla menn. Bakþankar 25. maí 2008 06:00
Höfum við efni á að virkja ekki? Nýlegt álit Skipulagsstofnunar um tvær fyrirhugaðar jarðvarmavirkjanir á vegum Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði hefur eðlilega vakið mikla athygli. Fastir pennar 24. maí 2008 09:57
Þjóð á vergangi Um leið og blásið er til Listahátíðar lifnar borgin við eins og í ljóði eftir Tómas. Óteljandi barnsandlit horfa glaðleg, undirleit eða varfærin til vegfarenda í Lækjargötunni og úti í Tjörninni marar hús í hálfu kafi. Bakþankar 24. maí 2008 06:00
Liðskönnun landans Úrslitaleikur meistaradeildarinnar í knattspyrnu var stór skemmtun. Manchester United fáninn blakti á þaki frystihússins í Hrísey fram að leik og starfsmenn þess höfðu fyllt neðri hæðina á veitingahúsinu Brekku þegar Hörður Magnússon, yfirlýsari Íslands, hrópaði alla leið frá Moskvu að leikurinn væri hafinn. Fastir pennar 24. maí 2008 06:00
Fyrsta árið Helsti ágalli gildandi kosningaskipunar og flokkakerfis er sá að kjósendur geta ekki sjálfir við kjörborðið valið á milli borgaralegra ríkisstjórna og vinstri stjórna. Fastir pennar 23. maí 2008 06:00
Vonbrigði Hafi eitthvað valdið mér vonbrigðum undanfarið þá er það kreppan sem allir eru að tala um. Eftir kreppuspár undanfarinna mánaða var ég orðin svolítið spennt og sá fram á að loks ætti það fyrir mér að liggja að lifa spennandi tíma. Bakþankar 23. maí 2008 06:00
Stórt lán? Til hvers? Efnahagsástandið er í ólestri eina ferðina enn. Verðbólgan æðir áfram, þótt ríkisstjórnin hafi sett sér það höfuðmarkmið að halda henni í skefjum. Bankar og ýmis fyrirtæki segja upp fólki í stórum stíl. Skuldir þjóðarinnar hanga á bláþræði yfir höfði hennar, erlendar skuldir jafnt sem innlendar. Fastir pennar 22. maí 2008 06:00
Skerpir vitund um hagsmuni Íslands Líf færðist á ný í yfirgefinn stekkinn á svonefndu varnarsvæði Keflavíkurflugvallar fyrr í mánuðinum, þegar þangað komu á annað hundrað franskir hermenn í þeim erindagjörðum að sinna um sex vikna skeið fyrir hönd Íslands og Atlantshafsbandalagsins eftirliti með hinu hátt í milljón ferkílómetra stóra loftvarnasvæði Íslands. Fastir pennar 22. maí 2008 06:00
Verið hrædd! Á sunnudaginn sat ungur lyfjafræðinemi og steytti hnefana framan í sjónvarpskerm. Það sauð á honum gremjan. Hvernig dirfðust þau? Hann var að horfa á grillveislu. Grillkjötið var átrúnaðargoð unga mannsins, sjálfur Luftstürmmeister Magnús Þór Hafsteinsson. Bakþankar 22. maí 2008 06:00
Massa hress, megabeib Sígild skemmtun er að gramsa upp úrelt viðhorf og njóta þess hagstæða samanburðar sem okkur finnst tíminn hafa fært. Þannig komst ég eitt sinn yfir gamla bók sem kenndi kvenleika. Bakþankar 21. maí 2008 00:01
Til hvers einkaframkvæmd? Um árabil hafa einkaaðilar veitt sjúklingum þjónustu af ýmsum toga, en almannatryggingar greiða kostnaðinn að sínum hluta. Heilsugæslustöðvar á vegum hins opinbera og læknamiðstöðvar á vegum lækna virðast hafa rekist ágætlega saman en lítið hefur verið um rannsóknir á kostnaði þessara tveggja rekstrarforma. Fastir pennar 20. maí 2008 06:00
Tröppugangur til himnaríkis Þó að allar kynslóðir þekki lagið Stairway to Heaven hef ég nýlega komist að því að kynslóðin sem tilheyrði hópi unglinga þegar það var efst á vinsældalistum lumar á leyndarmáli. Lagið er nefnilega ekki aðeins undurfögur klassík heldur ku það víst einnig geyma afar leynilega uppskrift af því sem flestir menn leita eftir en fæstir ná fullum tökum á. Bakþankar 20. maí 2008 06:00
Kenna, ekki banna Faraldur er orðið sem Sigurður Örn Hektorsson geðlæknir á Landspítala notar um hraða fjölgun sprautufíkla á Íslandi. Í Fréttablaðinu um helgina var sagt frá því að hér væru nú um 700 virkir sprautufíklar og að í þann hóp bættust 70 til 110 manns á ári. Flestra þessara manna og kvenna bíður algjört niðurbrot á líkama og sál. Sjaldgæfar, illvígar blóðsýkingar, lifrarbólga og geðsjúkdómar eru örlög margra sem svala fíkninni með því að sprauta sig í æð. Fastir pennar 20. maí 2008 04:00
Sérhagsmunagæsla Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, VG og Miðflokks dæmd ólögleg Hanna Katrín Friðriksson Skoðun
Umbreyting á einni nóttu – Þegar öryrki verður að ellilífeyrisþega Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun