Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. Innlent 20. ágúst 2026 12:21
Um peningalegt fullveldi og framsal þess Ljóst er að með inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru verður viðbótar framsal okkar svo umfangsmikið að telja verði að Ísland hafi þar með afsalað sér peningalegu fullveldi sínu. Það verður dýru verði keypt og um það verður ekki samið. Umræðan 20. ágúst 2026 07:50
Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. Innlent 20. ágúst 2026 07:29
„Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ „Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum. Innlent 19. ágúst 2026 12:30
Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. Innlent 18. ágúst 2026 21:03
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt. Innlent 18. ágúst 2026 19:56
Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Þrýst var á fulltrúa fjögurra hreyfinga að opna bókhaldið, með misjöfnum árangri, í Pallborðinu. Já til að sjá gerir ráð fyrir að eyða allt að 75 milljónum en fátt var um svör frá Áfram Íslandi. Andstæðingar samtakanna áætla að þau hafi úr allt að 300 milljónum að spila. Innlent 18. ágúst 2026 17:11
Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Ákveði Íslendingar að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið gæti það greitt götu Svartfjallalands inn í Evrópusambandið, að því er fram kemur í frétt Reuters. Þar er haft eftir háttsettum erindreka innan ESB að viðræður við auðugt ríki á borð við Ísland geti dregið úr efasemdum um frekari stækkun sambandsins. Erlent 18. ágúst 2026 16:29
Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. Innlent 18. ágúst 2026 12:18
Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Breskur hagfræðiprófessor sem sat í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eftir hrun segir Ísland eiga heima í evrusvæðinu. Upptaka evru geti aukið stöðugleika og gerði það afar ólíklegt að hrun eins og það sem varð árið 2008 endurtæki sig. Viðskipti innlent 18. ágúst 2026 11:33
Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Um 82 prósent telja að hitamet og skógareldar í Evrópu séu að miklu leyti vegna loftslagsbreytinga. Töluverður munur er eftir kyni og afstöðu til stjórnmálaflokka. Þetta er niðurstaða könnunar Maskínu sem framkvæmd var í ágúst. Innlent 18. ágúst 2026 08:49
Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Það var þrá og von okkar Íslendinga að búa „langt frá heimsins vígaslóð“. Seinni heimsstyrjöldin færði okkur heim sanninn um að sú vígaslóð var ekki umflúin. Í kjölfarið höfum við gengið til samstarfs við aðrar þjóðir með aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu til að leggja okkar af mörkum til friðar og um leið til að verja frelsi okkar og fullveldi. Síðan höfum við eflt efnahagssamstarf með aðild að EFTA og EES. Skoðun 18. ágúst 2026 08:02
Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug. Lífið 17. ágúst 2026 15:00
Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi. Innlent 17. ágúst 2026 13:36
Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Erfitt er fyrir kjósendur að átta sig á því hvað þeir eru að greiða atkvæði um þann 29. ágúst næstkomandi vegna upplýsingamengunar frá báðum fylkingum segir stjórnmálafræðingur. Þær tileinki sér báðar ákveðna anga popúlisma. Innlent 17. ágúst 2026 12:02
Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. Innlent 17. ágúst 2026 10:39
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Dóttir mín sem er uppalin og býr í Bretlandi er enn miður sín yfir úrslitum Brexit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2016. Hún mjög reið yfir öllum lygunum sem Brexit hópurinn setti fram – á hliðum strætisvagna, í bæklingum sem bornir voru í hús, í dagblöðum, í viðræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi – og víðar. Skoðun 17. ágúst 2026 08:03
Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum. Innlent 16. ágúst 2026 17:43
Það er jóker í spilinu Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið. Innlent 16. ágúst 2026 14:56
Sérstaða Íslands útilokar að líkindum aðild að ESB Um samningsmarkmið í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB verður að tala opið og skýrt um sjávarútvegsmálin. Dæmi um skort á þessu er að finna í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar - það er fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna - á tillögu utanríkisráðherra um að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB. Umræðan 16. ágúst 2026 14:44
Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Framkvæmdastjóri Krónunnar segir margt við nýja umbúðareglugerð Evrópusambandsins ekki henta íslenskum markaði. Verslunin hafi lengi reynt að nýta svokallaðar áfyllingarlausnir en neytendur ekki tekið vel í þær. Hún vonar að lausn finnist fyrir Íslendinga ef EFTA-ríkin innleiða reglugerðina. Viðskipti innlent 15. ágúst 2026 15:32
Bændur segja nei 95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. Innlent 14. ágúst 2026 16:08
„Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. Innlent 14. ágúst 2026 07:01
Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka. Innlent 13. ágúst 2026 18:31
„Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður til viðtals í Ísland í dag strax að loknum kvöldfréttum Sýnar þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan verður til umræðu. Viðtalið verður aðgengilegt öllum landsmönnum. Innlent 13. ágúst 2026 10:00
Ekki hægt að gefa „neinn afslátt af raunvaxtastiginu“ við þessar aðstæður Við núverandi aðstæður getur peningastefnunefnd Seðlabankans ekki „gefið neinn afslátt“ af raunvaxtastiginu ef það á að takast á ná verðbólgunni niður í markmið, að mati sérfræðinga Acro verðbréfa. Þeir telja að nefndin sé því „nauðbeygð“ til að hækka vextina á næsta fundi og vara við því að verðbólgan geti farið upp í sex prósent síðar á árinu. Innherji 12. ágúst 2026 09:35
Vill fjölskyldan þín greiða 70 þúsund krónur á mann og fá ekkert í staðinn? Evrópusambandið er að stórum hluta hringekja millifærslna þar sem aðildarríkin borga fjármuni inn miðað við landsframleiðslu og fá svo styrki til afmarkaðra verkefna, eftir að hluti af peningunum hefur horfið í stjórnsýslukostnað. Umræðan 12. ágúst 2026 08:26
Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Utanríkisráðherra Spánar segir að allir þeir sem fóru ólöglega inn í spænsku borgina Ceuta í Marokkó verði sendir til baka. Enginn þeirra hafi komist til meginlands Spánar og engin ógn steðji að Schengen-landamærasamstarfi Evrópuríkja. Erlent 11. ágúst 2026 13:22
Hver á að hafa síðasta orðið um málefni Íslands? Ef vilji stuðningsmanna aðildar stæði til þess að gefa rétta mynd af skiptingu valdheimilda Sambandsins og aðildarríkjanna væri þeim rétt og skylt að lýsa fyrst þeim ákvæðum þar sem ESB fer með endanlegt löggjafarvald, ræða síðan sameiginlegar valdheimildir og loks hvar aðildarríkin ein fara með valdið til lagasetningar. Umræðan 11. ágúst 2026 07:35
Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Forsætisráðherra vill að þjóðin komi sameinuð út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst, sama hvernig fer. Hún hefur skipulagt ferð um landið í þeim tilgangi að hlusta á væntingar, þrár og áhyggjur fólks í sambandi við atkvæðagreiðsluna. Innlent 9. ágúst 2026 15:06
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent