Evrópu­sam­bandið

Evrópu­sam­bandið

Fréttamynd

Bregðast við skammarbréfi Þor­gerðar og fé­laga

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heitir því að ráðast í aðgerðir eftir að ellefu Schengen-ríki, þar á meðal Ísland, kröfðust þess að Evrópusambandsríki hertu á útgáfu vegabréfsáritana til rússneskra ríkisborgara. Þar gagnrýndu þau óbeint Frakka, Ítali og Spánverja sem enn taka á móti hundruðum þúsunda rússneskra ferðamanna á ári.

Erlent
Fréttamynd

Vill fá Ís­land inn og tólf í við­bót

Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi.

Erlent
Fréttamynd

Ég þarf ekki að skoða mat­seðilinn á steik­húsinu ef ég borða ekki kjöt

Umræðan fer út af sporinu þegar því er haldið fram að andstæðingar aðildarviðræðna vilji ekki sjá matseðilinn. Við vitum nægilega mikið um veitingastaðinn til að vita að hann hentar okkur einfaldlega ekki. Matseðillinn er þekktur og margir Íslendingar hafa komist að þeirri niðurstöðu að réttirnir sem þar eru í boði séu ekki þess virði að greiða fyrir þá það verð sem fylgir aðild. Sú niðurstaða byggir ekki á ótta og ekki á skorti á upplýsingum. Hún byggir á upplýsingum sem liggja fyrir.

Umræðan
Fréttamynd

Stærsti hluti land­búnaðar­lands ekki í virkri notkun

Tvö af hverjum þremur lögbýlum á Íslandi eru ekki í skráðum rekstri sem tengist landbúnaði og vísbendingar eru um að lögum sem eiga að takmarka óhóflega jarðasöfnun sé ekki beitt. Lagt er til að lög um eignarhald á jörðum verði hert í skýrslu á vegum Landbúnaðarháskólans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ís­land og ESB: samnings­mark­mið, aðildar­viðræður og Evran

Þótt öll ný aðildarríki ESB séu skuldbundin til að taka upp evru má fresta því um óákveðinn tíma. Ríkin sem hafa valið að taka ekki upp evru gera það af því ekki síst að það er pólitískur meirihluti fyrir sjálfstæðri peningastefnu. Þarna virðist meðal annars á ferðinni gildismat sem hverfist um fullveldið og að geta haft ákvörðunarvald yfir efnahagsstefnunni, einkum ef áföll verða.

Umræðan
Fréttamynd

Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að upptaka evrunnar myndi veita Íslandi aðgang að stærra efnahagssvæði og hefði stærðarhagkvæmni í för með sér, en Ísland yrði að innleiða önnur hagstjórnartæki til að tryggja stöðugleika í hagkerfinu í stað sjálfstæðrar peningastefnu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Val­kostir Ís­lands í gjaldmiðlamálum

Fjármála- og efnahagsráðherra efnir til ráðstefnu í dag kl. 14-17 í Silfurbergi í Hörpu í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ætla að senda fleiri hælis­leit­endur á brott

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komist að samkomulagi um ný lög sem ætlað er að umbreyta innflytjenda- og hæliskerfi sambandsins. Meðal annars felur samkomulagið í sér að flýta brottflutningi fólks sem hefur verið meinað um hæli, að reisa móttökustöðvar fyrir farandfólk utan ríkja ESB, styðja þau ríki sem fá hvað mest af farand- og flóttafólki og að hraða ferlinu öllu.

Erlent
Fréttamynd

Höggið verði mikið fyrir ríkis­stjórnina segi þjóðin nei

Það verður mikið högg fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei við aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Niðurstaðan muni hafa mikil áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið að sögn stjórnmálafræðings og þar verði Samfylkingin ekki undanskilin þrátt fyrir að hún hafi ekki beitt sér mikið í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Veita sex­tán milljarða evra til Ung­verja­lands

Úrbætur nýrrar ríkisstjórnar Ungverjalands gera Evrópusambandinu kleift að losa um sextán milljarða evra fjárframlög til landsins. Fjárframlögin höfðu verið fryst í valdatíð Viktors Orbán sem færði Ungverjaland fjær grunngildum Evrópusambandsins um lýðræði og mannréttindi.

Erlent
Fréttamynd

Þrír mánuðir til stefnu

Formaður Evrópuhreyfingarinnar segir það gleðitíðindi fyrir alla þjóðina að greidd verði atkvæði um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eftir þrjár mánuði. Formaður Heimssýnar segir óljóst hvað bíði kjósi þjóðin já. 

Innlent
Fréttamynd

Er ekki best að tala bara ís­lensku um ESB og mat­væla­verð?

Nú að loknum sveitarstjórnarkosningum hefur umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB tekið sig upp aftur og er matvælaverð algengt stef í orðræðu aðildarsinna síðustu daga. Ýmist fullyrða þeir að matvælaverð muni lækka um tugi prósenta við inngöngu í sambandið eða gefa það sterklega í skyn, en algengasta fullyrðingin er sú að matvælaverð geti lækkað hér um ein 25%.

Skoðun
Fréttamynd

Gervigreindargjöf til lýð­ræðisins

Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur hleypt af stokkunum gervigreindarvef um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst næstkomandi. Sölustjóri segir fólk ekki lengur hafa neina afsökun til að taka upplýsta og meðvitaða ákvörðun. Lagt er upp með að vefurinn sé hlutlaus.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði tvö hundruð milljóna evra sekt á kínversku netverslunina Temu fyrir að selja ólöglegan varning í Evrópu í dag. Sektin er sú stærsta frá því að lög um stafræna þjónustu tóku gildi í álfunni.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

„Stattu vörð um fjall­konuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, ritar hálfgerða heimsósómagrein í Morgunblaðið. Greinin birtist í morgun en þar getur hann vart tekið nógu djúpt í árinni; hann talar eindregið fyrir því að fólk segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu – sem verður á höfuðdeginum sjálfum.

Innlent
Fréttamynd

„Orð hennar og þessar upp­hrópanir ekki til sóma“

Búast má við kröftugum lokaspretti í umræðu um þingsályktunartillögu varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu á Alþingi en umræðan þarf að klárast í dag ef fyrirhuguð dagsetning á að halda. Þingkona Sjálfstæðisflokksins talar fyrir tveimur breytingartillögum og segir orðræðu utanríkisráðherra henni ekki til sóma. 

Innlent
Fréttamynd

Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í októ­ber

Umræðum um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verður fram haldið á þingfundi í dag klukkan þrjú. Stjórnarandstaða leggur til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað og að gerðar verði frekari breytingar á spurningunni. 

Innlent
Fréttamynd

Vakta haf­svæðið með ESB-dróna frá Horna­firði

Ómannað loftfar á vegum Landhelgisgæslunnar sem er ætlað að hafa eftirlit með hafsvæðinu umhverfis landið verður tekið í notkun í vikunni. Dróninn verður gerður út frá Hornafjarðarflugvelli og er fjármagnaður af Evrópusambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð

Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Vilja skipa erind­reka en vita ekki hvert erindið er

Ráðamenn í Evrópu eru með til skoðunar að skipa sérstakan erindreka gagnvart Rússlandi sem koma á að friðarviðræðum um Úkraínu. Þessi erindreki myndi þá eiga í viðræðum við ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Fyrst þurfa Evrópumenn þó að komast að samkomulagi um hvað erindrekinn á að segja.

Erlent
Fréttamynd

„Munum aldrei“ geta tekið upp evru nema koma vinnu­markaðinum fyrst í lag

Krónan er ekki orsakavaldur þeirrar þrálátu verðbólgu sem peningastefnunefnd Seðlabankans er núna að reyna ná niður með hækkun vaxta, að sögn seðlabankastjóra, heldur er fremur augljóst að miklar launahækkanir eru að birtast með skýrum hætti í verðbólgutölunum. Hann segir að vinnumarkaðslíkanið sé greinilega „brotið“ og það muni ekki lagast sjálfkrafa við mögulega inngöngu Íslands í evrópska myntbandalagið heldur þurfi að koma því í lag á undan.

Innherji
Fréttamynd

Hver ræður í Barents­hafi?

Sama spurning blasir við Íslendingum í dag og Norðmönnum árið 1994. Viljum við halda eigin sæti við samningaborðið eða víkja úr því sæti og fela ESB að taka ákvarðanir fyrir okkar hönd? Togstreita Norðmanna og ESB varðandi fiskveiðar í Barentshafi leiðir í ljós kjarnann í þessari spurningu.

Umræðan
Fréttamynd

Aðildar­við­ræður gætu kostað tæpa tvo milljarða

Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs.

Innlent