
Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja
Borja Sainz, markahæsti leikmaður Norwich City á tímabilinu, hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Borja Sainz, markahæsti leikmaður Norwich City á tímabilinu, hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja.
Alexander Isak, framherji Newcastle United, var valinn leikmaður desember-mánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði átta mörk og lagði upp tvö í sex leikjum í desember.
Liverpool átti afskaplega gott haust undir stjórn nýs stjóra, Hollendingsins Arne Slot, og sat á toppi ensku úrvalsdeildarinnar sem og Meistaradeildar Evrópu um áramót. Mikið þarf að gerast til að Púllarar kasti frá sér toppsæti deildarinnar, samkvæmt fyrrum knattspyrnumanninum Joey Barton.
Amad Diallo, sem hefur spilað vel fyrir Manchester United undanfarnar vikur, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.
David Moyes hefur rætt við eigendur Everton um möguleikann á að taka við liðinu. Hann stýrði því á árunum 2002-13.
43 ára gamall fyrrum fótboltadómari þarf ekki að dúsa í fangelsi þrátt fyrir líkamsárás sína á táning sem var aðstoðardómari í leik hjá honum.
Fulham, Everton og Cardiff City komust öll áfram í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld.
Enskir miðlar eru strax farnir að velta því fyrir sér hver verði næsti knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Everton.
Enskir miðlar segja að Everton hafi rekið knattspyrnustjórann Sean Dyche. Þetta kemur fram hjá BBC, Sky Sports og The Athletic.
Joshua Kimmich, fyrirliði þýska landsliðsins, er á óskalista Liverpool. Samningur hans við Bayern München rennur út í sumar.
Wayne Rooney valdi heldur óvenjulegan stað til að biðja eiginkonu sinnar, Coleen. Hann bað hana nefnilega að giftast sér á bensínstöð.
Þrjú sænsk félög hafa sýnt því áhuga að fá Arnór Sigurðsson, landsliðsmann í fótbolta, frá Blackburn. Samningur Arnórs við enska félagið rennur út í sumar.
Tottenham vann 1-0 sigur á Liverpool í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum í fótbolta í gærkvöld. Svíinn ungi Lucas Bergvall réði úrslitum.
Harry Maguire, leikmaður Manchester United, þarf að fá far á æfingar næstu vikurnar því hann hefur verið settur í akstursbann eftir að hann var tvívegis tekinn fyrir hraðakstur á aðeins þremur dögum.
Antonin Kinsky hélt hreinu í fyrsta leik sínum fyrir Tottenham og eftir hann átti Tékkinn tilfinningaríka stund með systur sinni.
Þáttastjórnandinn Mark Chapman og sérfræðingar hans á Sky Sports hentu gaman að gagnrýni Mikels Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, á boltann sem er notaður í enska deildabikarnum.
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var mjög ósáttur með að Svíinn Lucas Bergvall hafi sloppið við rauða spjaldið í 1-0 sigri Tottenham á Liverpool í enska deildabikarnum í kvöld.
Svínn Lucas Bergvall tryggði Tottenham 1-0 sigur á Liverpool í kvöld í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum.
Manchester United mun líklegast lána Marcus Rashford til liðs utan Englands og tvö félög eru sögð mjög áhugasöm.
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur rekið Julen Lopetegui úr starfi knattspyrnustjóra og nýr maður er að taka við.
Cristiano Ronaldo hefur hvatt lið sitt, Al-Nassr, til að kaupa sinn gamla samherja, Casemiro.
Tomás Rosický þykir líklegastur til að verða næsti íþróttastjóri Arsenal. Hann þekkir vel til hjá félaginu.
Newcastle vann góðan 2-0 útisigur á Arsenal í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum í gærkvöld. Alexander Isak, sem var orðaður við Skytturnar í sumar, átti þátt í báðum mörkum gestanna.
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að ástandið hjá liðinu sé svo slæmt að jafnvel Mohamed Salah, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildinni, ætti erfitt uppdráttar hjá því.
Knattspyrnustjóri Arsenal, Mikel Arteta, telur að boltinn sem er notaður í enska deildabikarnum hafi haft áhrif á færanýtingu liðsins gegn Newcastle United.
Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United og ellefufaldur Englandsmeistari með félaginu, er vægast ósáttur með innkomu Sir Jim Ratcliffe og INEOS fyrirtækisins inn í eigandahóp félagsins.
Newcastle gerði góða ferð suður til London í kvöld og vann 2-0 sigur á Arsenal í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins
Matheus Cunha, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Wolves, þarf bara að taka út tvo leiki af þriggja leikja banni sínu.
Faðir auðjöfursins Elon Musk segir son sinn hafa á áhuga á því að eignast enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool.
Forráðamenn Chelsea hafa áhuga á því að klófesta aftur varnarmanninn Marc Guehi frá Crystal Palace. Félagið seldi leikmanninn til Palace á 18 milljónir punda árið 2021.