

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Barði konu með eldhúsrúllustandi og bar fyrir sig neyðarvörn
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás gegn konu sem gisti á heimili hans eftir sambandsslit hennar. Sló maðurinn konuna nokkrum sinnum í bakið með eldhúsrúllustandi en ekki var fallist á málsvörn hans um neyðarvörn.

Dæmdur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi eftir hraðakstur
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í sextíu daga fangelsi fyrir að hafa verið valdur að umferðarslysi þar sem tveir slösuðust eftir að hann hafði misst stjórn á bíl sínum þar sem hann ók of hratt á þjóðvegi 1 í Hörgársveit í nóvember 2021.

Hótaði að senda foreldrunum nektarmyndband
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um nálgunarbann á hendur manni sem sakaður er um að hafa ítrekað brotið gegn konu kynferðislega og haft uppi hótanir um að dreifa kynferðislegu myndefni af henni.

Staðfestu fulla endurgreiðslu skíðaferða vegna faraldursins
Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu Landsréttar sem gerði Ferðaskrifstofu Íslands að endurgreiða viðskiptavinum sínum heildarverð skíðaferðar sem afpöntuð var vegna Covid-19 faraldursins. Ferðaskrifstofan taldi að heimild til að afpanta væri óhóflega íþyngjandi fyrir eignarétt þess.

FÍH hafði betur gegn Rúv
Félagsdómur staðfestir að óheimilt sé að sniðganga ákvæði kjarasamninga sem kveða á um lágmarkskjör í máli FÍH gegn Rúv. Dómurinn féll vegna samninga stofnunarinnar við hljómlistarmenn á Jazzhátíð Reykjavíkur og er fordæmisgefandi, sérstaklega í listgreinum.

Vafði byssunni inn í peysu til að smygla henni inn á Dubliner
Karlmaður rétt undir þrítugu hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, með því að hleypa af haglabyssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í mars síðastliðnum.

Ofsótti lesbískt par í marga mánuði og hótaði þeim lífláti
Kona var í dag dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir umsáturseinelti sem beindist að lesbísku pari. Konan sat um, hrellti og niðurlægði konurnar ítrekað í rúmlega fjóra mánuði vegna kynhneiðgar þeirra.

ÁTVR mátti neita að selja koffíndrykk
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) var í dag sýknuð af kröfum heildsölunnar Distu vegna ákvörðunar um að selja ekki koffíndrykk.

Smyglaði amfetamíni í vínflöskum og hlaut þungan dóm
Pólsk kona var í dag sakfelld í Landsrétti fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæpum fjórum lítrum af amfetamínbasa frá heimalandinu. Landsréttur mildaði dóm hennar verulega, úr fimm og hálfu ári í fjögur ár.

Þyngdu nauðgunardóm yfir Finni
Landsréttur hefur með dómi sínum í dag þyngt fangelsisdóm yfir Finni Þ. Gunnþórssyni um sex mánuði fyrir að hafa nauðgað konu í nóvember 2019. Héraðsdómur hafði dæmt hann í tveggja og hálfs árs fangelsi og taldi að seinagangur hjá lögreglu við skýrslutökur hafi ekki spillt vörn hans.

Dómar í saltdreifaramálinu mildaðir um tvö ár
Dómar þeirra Halldórs Margeirs Ólafssonar og Ólafs Ágústs Hraundal fyrir hlut þeirra í saltdreifaramálinu svokallaða voru mildaðir um tvö ár í Landsrétti í dag. Í héraði voru þeir dæmdir til þyngstu mögulegu refsingar, tólf ára fangelsisvistar. Aðrir dómar í málinu voru einnig mildaðir um tvö ár og einn var skilorðsbundinn.

Hæstiréttur lækkaði laun verjenda um margar milljónir
Formaður Lögmannafélags Íslands segir aukna tilhneigingu dómstóla til þess að virða framlagðar tímaskýrslur verjenda að vettugi hættulega þróun. Svo gæti farið að aðeins þeir efnameiri fái góða málsvörn í sakamálum.

Sorglegt að enginn beri ábyrgð á andláti á geðdeild
Sigríður Gísladóttir, formaður Geðhjálpar, segir sorglegt að manneskja geti látið lífið á geðdeild án þess að nokkur beri ábyrgð.

Schäfer-ræktunar mæðgur reyna aftur að hnekkja úrskurði siðanefndar
Mál mæðgnanna í Schäfer-hunda ræktuninni Gjósku gegn Hundaræktunarfélagi Íslands (HRFÍ) er enn á ný komið til héraðsdóms. Krefjast þær að úrskurði um fimmtán ára bann verði hnekkt.

„Betra en að vera dæmdur í fjórtán ára fangelsi“
Hæstiréttur staðfesti í dag sekt allra fjögurra sakborninga í einu umtalaðasta morðmáli íslandssögunnar, morðinu í Rauðagerði. Sakborningar hlutu töluvert mildari dóma en í Landsrétti.

Segir brýnt að Landspítalinn dragi lærdóm af málinu
Lögmaður hjúkrunarfræðings sem sýknuð var af ákæru um manndráp í opinberu starfi segir dóminn sem féll í héraðsdómi í dag afdráttarlausan og mikinn sigur. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir niðurstöðuna mikilvæga stéttinni allri.

Hinrik Ingi dæmdur fyrir líkamsárás og fjárkúgun
Hinrik Ingi Óskarsson, crossfit keppandi og einkaþjálfari, hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir uppsöfnuð brot. Lárus Guðmundur Jónsson, félagi hans, hlaut sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Dómar í Rauðagerðismálinu mildaðir verulega
Angjelin Sterkaj var rétt í þessu dæmdur til sextán ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir morðið á Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði í febrúar 2021. Þrír hlutdeildarmenn hans voru dæmdir til þriggja til tíu ára fangelsisvistar.

Talin hafa valdið dauða sjúklings en ásetningurinn ósannaður
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi sannað að hjúkrunarfræðingur á geðdeild hefði valdið dauða sjúklings með því að hella næringardrykk upp í hann þar til hann kafnaði. Hjúkrunarfræðingurinn var sýknaður þar sem ásetningur hans til manndráps þótti ekki sannaður.

„Þetta er ekki leiðin til að halda heilbrigðisstarfsfólki í vinnu“
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, fagnar niðurstöðu héraðsdóms í dag í máli hjúkrunarfræðings á geðdeild Landspítalans.

Svandís með dóma á bakinu fyrir ólögmæta stjórnsýslu
Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum.

Hjúkrunarfræðingurinn sýknaður af ákæru um manndráp
Hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum var sýknaður af ákæru um að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild spítalans fyrir tveimur árum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Konan var sýknuð af öllum kröfum héraðssaksóknara og einkaréttarkröfu aðstandanda þess sem lést var vísað frá dómi.

Hæstiréttur tekur mál Brynjars fyrir
Hæstiréttur samþykkti á dögunum málskotsbeiðni Brynjar Joensen Creed, sem dæmdur var til sjö ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum í Landsrétti.

Par vildi ekki kannast við að eiga mikið magn fíkniefna
Par var á dögunum dæmt til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, fyrir að hafa haft mikið magn fíkniefna í vörslum sínum á heimili þeirra. Auk fíkniefna fannst hálfsjálfvirk haglabyssa og 1,5 milljón króna í reiðufé. Konan þarf að þola upptöku fjárins, þrátt fyrir segjast hafa aflað þess með barnapössun og kökusölu.

Vísað ranglega á sjúkrabíl þegar kona á geðdeild lést
Símavörður á Landspítalanum vísaði hjúkrunarfræðingum á geðdeild á að hringja eftir sjúkrabíl í stað þess að kalla út endurlífgunarteymi eins og bar að gera þegar sjúklingur á deildinni lést fyrir tveimur árum. Spítalinn neitar að afhenda niðurstöður innri rannsóknar á andlátinu en hjúkrunarfræðingur af deildinni er ákærður fyrir manndráp vegna þess.

Gekk berserksgang í sumarbústað
Selfyssingur á þrítugsaldri hefur verið dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar fyrir fimm líkamsárásir, brot gegn valdstjórninni og umferðarlagabrot. Meðal brotanna eru fjórar líkamsárásir framdar í sumarbústað sama kvöldið.

Lumbraði á löggu í ölæði
Karlmaður á Austurlandi hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að kýla lögregluþjón.

Enginn ásetningur að Erling dvelji á hjúkrunarheimili í stað þess að fá NPA þjónustu
Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri velferðarsviðs Mosfellsbæjar, segir leitt að mál Erling Smith sé kominn í þann farveg sem Vísir hefur greint frá. Fundað verður með lögmönnum um lausn málsins.

„Ég missi helming blóðs og drukkna næstum því“
„Ég er rétt yfir þrítugt, öryrki og einstæð móðir. Ég ætti að vera á fullu á vinnumarkaði en ég næ því ekki,“ segir Kristbjörg Kamilla Sigtryggsdóttir sem lenti í alvarlegu sæþotuslysi árið 2020. Tveir menn voru í upphafi mánaðar dæmdir til að bera óskipt ábyrgð á tjóni Kristbjargar. Hún segir erfitt að líta á dóminn sem sigur í ljósi þess sem á undan gekk.

Spilafíkill hafði fjármuni af þroskaskertum mönnum
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir konu sem grunuð er um að hafa svikið 25 milljónir af að minnsta kosti ellefu karlmönnum, þar af sex með þroskaskerðingu. Konan segist haldin alvarlegri spilafíkn.