Telja dóminn rangan og vilja komast beint í Hæstarétt Landsvirkjun hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. janúar síðastliðnum þar sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi og óska eftir því að málið fari beint til Hæstaréttar. Innlent 20. janúar 2025 15:18
Gripinn þrisvar sama kvöldið og skuldar rúma milljón Karlmaður hefur verið dæmdur til greiðslu 1,29 milljóna króna fyrir endurtekin umferðarlagabrota framin sama kvöldið á Selfossi. Hann var stöðvaður tvisvar sitt hvoru megin við veitingastað KFC í bænum. Innlent 20. janúar 2025 14:13
Dómari fær ekki að víkja í máli Margrétar Landsréttur hefur fellt úrskurð héraðsdómarans Jónasar Jóhannssonar, um að hann víki sjálfur sæti í ærumeiðingamáli Margrétar Friðriksdóttur ritstjóra, úr gildi. Margrét sætir ákæru fyrir að hafa meðal annars kallað annan héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur „lausláta mellu“. Allir dómarar þess dómstóls höfðu áður vikið sæti í málinu. Innlent 20. janúar 2025 12:18
Hótaði að kveikja í sambýliskonu og stjúpsyni Karlmaður hefur verið dæmdur til sextíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hóta að kveikja í sambýliskonu sinni og stjúpsyni í herbergi í Reykjanesbæ, þar sem hann geymdi bensínbrúsa. Fyrir dómi kvaðst hann hafa verið á slæmum stað andlega eftir að hafa flúið stríðsástand í heimalandi sínu. Innlent 17. janúar 2025 11:41
Afhenda dómsmálaráðherra skýrslu um Geirfinnsmálið í næstu viku Jón Ármann Steinsson bókaútgefandi vinnur nú að því, ásamt Sigurð Björgvini, að taka saman niðurstöður rannsóknar þeirra á því hver hafi myrt Geirfinn Einarsson 19. nóvember 1974. Niðurstöðurnar, og ýmis skjöl, verða afhent dómsmálaráðherra í næstu viku. Jón Ármann fór yfir málið í Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 16. janúar 2025 22:01
Ofsótti lesbíur um margra mánaða skeið: „Það er ekkert ólöglegt að segja að ég vilji kála henni“ Landsréttur hefur þyngt dóm konu sem var sakfelld fyrir umsáturseinelti sem beindist að lesbísku pari. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var konan dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, en í Landsréttur dæmdi hana í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Innlent 16. janúar 2025 17:42
Flutti frænda sinn til landsins og faðirinn ákærður fyrir vanrækslu Karlmaður hefur hlotið fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að brot á lögum um útlendinga með því að hafa flutt barnungan frænda sinn hingað til lands. Þeir njóta nú báðir alþjóðlegrar verndar hér á landi. Faðir drengsins var sömuleiðis ákærður fyrir að vanrækja drenginn með því að senda hann til Grikklands, þaðan til Svíþjóðar og loks til Íslands. Í skýrslutökum lýsti drengurinn illri meðferð á ferðalaginu, sem tók nokkur ár. Innlent 16. janúar 2025 13:39
Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar ógilt Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar. Innlent 15. janúar 2025 14:49
Hæstiréttur sker úr um hvort samræði við barn sé nauðgun Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, sem hefur verið sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn stúlku í unglingadeild skólans árin 2021 til 2022. Innlent 15. janúar 2025 10:39
Fluttur úr landi grunaður um að valda gassprengingu sem drap einn Pólskur karlmaður var afhentur til Póllands frá Íslandi á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar í vetur vegna meintra brota hans í heimalandinu. Hann er grunaður um að hafa valdið mannskæðri gassprengingu. Innlent 15. janúar 2025 08:02
Ógeðfelldum aðferðum lýst í ákæru á hendur þremur Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir alvarlega frelsissviptingu í Vatnagörðum í Reykjavík í janúar árið 2023. Mönnunum er gefið að sök að hafa beitt fórnarlamb sitt hrottalegu ofbeldi, líkamlegu sem og kynferðislegu. Einn mannanna er til að mynda ákærður fyrir að reka rassinn ítrekað í andlit fórnarlambsins og segja við það „sleiktu þetta“ og „kysstann“. Innlent 14. janúar 2025 16:31
Dómsmálaráðherra fundar með Sigríði og Helga Magnúsi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur látið það verða eitt sitt fyrsta verkefni í ráðuneytinu að reyna að komast til botns í ágreiningi Sigríðar Friðjónsdóttur ríkissaksóknara og Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara. Innlent 14. janúar 2025 15:32
Sakborningur í Sólheimajökulsmáli ákærður fyrir tilraun til manndráps Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi í Sólheimajökulsmálinu í síðasta mánuði, fyrir tilraun til manndráps. Honum er gefið að sök að hafa haldið manni kyrkingartaki í að minnsta kosti sjö mínútur. Innlent 13. janúar 2025 19:12
Þáttur hinna mannanna rannsakaður í þaula „Við eigum rosalega erfitt með að tjá okkur um mál þar sem um er að ræða lokað þinghald. En þetta var skoðað á sínum tíma og niðurstaðan var sú að það væri ekki líklegt til sakfellis.“ Innlent 13. janúar 2025 12:56
Grét og sagði líf sitt búið eftir að hafa stungið þrjá Karlmaður á fimmtugsaldri, sem grunaður um að hafa framið stunguárás í húsnæði Matfugls á Kjalarnesi á nýársnótt, fær að dúsa í gæsluvarðhaldi til 4. febrúar næstkomandi. Eftir handtöku greindi hann lögreglu frá því að hann hefði stungið þrjá menn í neyðarvörn. Á meðan á frásögn hans stóð grét hann og kvað líf sitt vera búið. Innlent 13. janúar 2025 11:06
„Stórkostlega undarlegt“ að þekktir gerendur séu ekki ákærðir Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar segir það undarlegt að fimm menn sem nauðguðu andlega fatlaðri konu að áeggjan yfirmanns hennar hafi ekki verið ákærðir. Brot á fötluðu fólki leiði sjaldnar til ákæru, hvað þá sakfellingu. Innlent 12. janúar 2025 18:56
„Ákæruvaldið þarf að útskýra þetta“ Fimm menn sem nauðguðu andlega fatlaðri konu fyrir tilstilli yfirmanns hennar voru ekki ákærðir þrátt fyrir að lögreglu hafi tekist að bera kennsl á fjóra þeirra. Fráfarandi stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola segist harmi sleginn yfir því að þeir verði ekki sóttir til saka. Innlent 11. janúar 2025 21:09
Átta ára fangelsi fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu ítrekað Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í átta ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra. Innlent 10. janúar 2025 18:12
„Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Karlmaður hefur verið dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjölda brota í nánu sambandi með því að hafa á endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð fyrrverandi sambúðarkonu sinnar. Hann hótaði meðal annars að myrða foreldra konunnar og dreifa nektarmyndum af henni. Innlent 10. janúar 2025 14:17
Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Á dögunum var karlmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að reyna að ráðast á fólk með hníf í byrjun desember. Hann er einnig grunaður um að hafa ráðist á móður sína nokkrum dögum áður. Innlent 9. janúar 2025 23:07
Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Kona sem var á síðasta ári ákærð fyrir fjárdrátt í opinberu starfi þegar hún var skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn er grunuð um að hafa notað peninginn til einkanota, aðallega í greiðslur sem fóru inn á veðmálasíður. Innlent 9. janúar 2025 19:01
Lagðist með hendur fyrir aftan bak eftir að hafa stungið mann Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri, Pétur Atla Árnason, í fimm ára og þriggja mánaða fangelsi fyrir tilraun til manndráps og hótanir. Um tvö aðskilin mál er að ræða, en hnífur kom við sögu í báðum þeirra. Innlent 8. janúar 2025 19:08
Foreldrar Ibrahims krefjast tuttugu milljóna í miskabætur Foreldrar Ibrahims Shah, átta ára drengs sem lést þegar ekið var á hann á Ásvöllum í Hafnarfirði í október 2023, krefja ökumann steypubíls um samtals tuttugu milljónir króna í miskabætur, að viðbættum lögmanns- og útfararkostnaði. Innlent 8. janúar 2025 16:03
Bílstjórinn á Ásvöllum ákærður fyrir manndráp af gáleysi Bílstjóri steypubíls, sem ók á dreng á Ásvöllum í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að hann lést, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir sviðsstjóri hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 8. janúar 2025 13:24
Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Tvíburabræður á þrítugsaldri, ásamt einum manni á þrítugsaldri til viðbótar, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þeir eru grunaðir um að hafa geymt mikið magn af MDMA, sem var ætlað til söludreifingar, í skrifstofuhúsnæði í Bæjarlind í Kópavogi. Héraðssaksóknari höfðar málið, en hann krefst upptöku á ýmsum gullmunum. Innlent 7. janúar 2025 21:16
Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Lögmaður Eddu Falak segir fyrrverandi samstarfsfólk Eddu í hlaðvarpinu Eigin konur fara fram á tugi milljóna króna frá henni, þegar tekjur hlaðvarpsins á samstarfstímanum hafi verið um tvær og hálf milljón. Fólkið hafi enga fjármuni lagt í hlaðvarpið, aðeins vinnu sína. Innlent 7. janúar 2025 14:59
Aldrei verið skráð fleiri manndrápsmál Rúmlega 148 þúsund mál voru skráð hjá lögreglu árið 2024 og hafa aldrei verið skráð fleiri manndrápsmál á einu ári. Þá var lagt hald á óvenju mikið magn af MDMA og maríjúana. Rétt rúmlega tólf þúsund hegningarlagabrot voru skráð. Innlent 6. janúar 2025 20:38
Neitar sök í manndrápsmálinu í Neskaupstað Maðurinn sem ákærður er fyrir að bana hjónum í Neskaupstað neitaði sök. Málið var þingfest í dag í Héraðsdómi Austurlands. Innlent 6. janúar 2025 16:00
Peningadeilur Fjólu og Eddu á dagskrá dómstóla Fyrrverandi samstarfsmenn Eddu Falak í hlaðvarpinu Eigin konum hafa stefnt henni fyrir héraðsdóm vegna uppgjörs í tengslum við þættina. Þeir vöktu mikla athygli árið 2021 þar sem hver konan á fætur annarri steig fram og sagði sögu sína. Innlent 6. janúar 2025 14:45
Grái herinn fær áheyrn í Strassborg Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg mun taka fyrir kæru Gráa hersins og þriggja ellilífeyristaka vegna dóms Hæstaréttar í máli sem snerist um skerðingu ellilífeyris almannatrygginga. Innlent 6. janúar 2025 12:15