
Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli
Það er þröng á þingi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem aðalmeðferð í stóra fíkniefnamálinu svokallaða fer fram. Átján eru talin tengjast þaulskipulögðum innflutningi á fíkniefnum til landsins með skemmtiferðaskipum. Verjandi fylgir hverjum sakborningi, blaðamenn eru þónokkrir og vegna fjöldans er aðalmeðferðinni streymt í annan dómsal.