

Útlit er fyrir að einn af bestu leikmönnum Dominos-deildarinnar í körfubolta síðustu ár, hinn 26 ára gamli KR-ingur Matthías Orri Sigurðarson, dragi sig í hlé. Hann segir ástríðuna fyrir körfuboltanum einfaldlega hafa minnkað.
Þórsarar frá Akureyri hafa samið við írska landsliðsmanninn Jordan Blount um að leika með liðinu á komandi leiktíð í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Blount kemur frá Aquimisa Carbajosa í spænsku C-deildinni.
Bandaríkjamaðurinn Josh Selby er sagður vera á leið til karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Hann á að baki leiki með Memphis Grizzlies í NBA-deildinni vestanhafs.
Slóveninn Sinisa Bilic mun leika með nýliðum Breiðabliks á komandi tímabili í Domino's deild karla. Hann kemur til liðsins frá Val, en hann hefur einnig leikið með Tindastól í efstu deild á Íslandi.
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá samningum við Slóvenann David Gabrovsek um að leika með liðinu á komandi tímabili í Domino's deild karla.
Bandaríski körfuboltamaðurinn Tyler Sabin hefur yfirgefið herbúðir KR og heldur nú til Ítalíu þar sem hann mun spila með San Sevro.
Íslenski landsliðsmiðherjinn Ragnar Nathanaelsson mun spila áfram í úrvalsdeild karla í körfubolta á komandi tímabili.
Helgi Már Magnússon, nýráðinn þjálfari karlaliðs KR í körfubolta, segist ekki hafa getað hafnað tækifærinu að taka við liðinu. Hann hlakki til nýs hlutverks hjá félaginu sem hann hefur spilað fyrir stærstan hluta síns leikmannaferils.
Helgi Már Magnússon hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs KR í körfubolta. Honum til aðstoðar verður Jakob Örn Sigurðarson. Helgi skrifaði undir þriggja ára samning við KR og Jakob eins árs samning.
Grindavík hefur borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í úrvalsdeildum karla og kvenna í körfubolta. Liðið hefur fengið bæði karlkyns og kvenkyns leikmann frá Bandaríkjunum auk þess sem Spánverjinn Ivan Aurrecoechea kemur til liðsins frá Þór á Akureyri.
Keflavík hefur borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í úrvalsdeild karla í körfubolta í haust. Liðið samdi í dag við framherjann David Okeke frá Ítalíu.
Körfuknattleiksmaðurinn CJ Burks mun ekki leika með Keflavík í Dominos deildinni í körfubolta á komandi leiktíð.
Ítalski Argentínumaðurinn Pablo Bertone hefur samið við Val um að leika með liðinu í Dominos deildinni á komandi leiktíð.
Karlakörfuboltalið Stjörnunnar hefur misst tvo unglingalandsliðsmenn í önnur félög á síðustu dögum og áður höfðu tvíburarnir af vestan einnig snúið til sín heima.
Larry Thomas, bakvörður Íslandsmeistara Þórs frá Þorlákshöfn, hefur samið við lettneska félagið BK Ventspils um að leika með félaginu á komandi tímabili.
Hilmar Smári Henningsson er genginn í raðir Stjörnunnar frá spænska liðinu Valencia og mun leika með Garðbæingum í úrvalsdeild karla í körfubolta næsta vetur.
Deane Williams mun ekki leika með deildarmeisturum Keflvíkingum á komandi tímabili í Domino's deild karla. Hann hefur samið við Saint Quentin sem leika í næst efstu deild í Frakklandi.
Ægir Þór Steinarsson hefur samið við spænska liðið Gipuzkoa Basket á Spáni um að leika með félaginu á næsta tímabili.
Körfuboltamaðurinn Halldór Garðar Hermannsson er genginn í raðir Keflavíkur frá Íslandsmeisturum Þórs Þ.
Tindastóll heldur áfram að safna liði fyrir næsta tímabil og hefur nú samið við reynslumikinn sænskan landsliðsmann.
„Fyrir mér hefði þetta mál aldrei átt að þurfa að fara alla þessa leið. Rétt skal hins vegar vera rétt,“ segir Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, eftir að hafa unnið mál sitt gegn KR vegna ítrekaðra vanefnda á samningi.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag körfuknattleiksdeild KR til að greiða Kristófer Acox, landsliðsmanni og fyrrum leikmanni KR, tæpar 3,8 milljónir króna í vangoldin laun. Auk þess var KR gert að greiða málskostnað Kristófers.
Tindastóll heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir næstu körfuboltaleiktíð eftir vonbrigðaniðurstöðu á síðustu leiktíð þar sem liðinu var sópað út af Keflavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls heldur áfram að semja við leikmenn og hefur tryggt sér krafta Taiwo Badmus á næstu leiktíð.
Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var í dag valinn besti leikmaður tímabilsins í Domino's deild karla en hann hefði viljað skipta verðlaununum út fyrir Íslandsmeistaratitil.
Leikmenn ársins í Dominos-deildunum í körfubolta koma ekki úr Íslandsmeistaraliðunum heldur úr karlaliði Keflavíkur og kvennaliði Hauka.
Keflvíkingar voru ekki búnir að tapa leik síðan í febrúar þegar þeir mættu Þórsurum í úrslitaeinvígi Domino's deildar karla í körfubolta. Þór vann þrjá af fjórum leikjum og tyggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.
Sigtryggur Arnar Björnsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur ákveðið að snúa aftur heim úr atvinnumennsku og spila með Tindastóli á næstu leiktíð.
Þórsarinn Styrmir Snær Þrastarson var í lykilhlutverki þegar Þórsarar urðu Íslandsmeistarar í fyrsta skiptið á föstudaginn var. Næst á dagskrá er að ákveða með hvaða skóla hann ætlar að spila í bandaríska háskólakörfuboltanum á næsta ári.
Davíð Arnar Ágústsson, betur þekktur sem Dabbi Kóngur, mætti í settið hjá Domino's Körfuboltakvöldi í gær og fór á kostum.