
Helgi Jónas samdi við mennina sem börðu hann ávallt í spað
Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfar karlalið Keflavíkur næstu tvö árin en hann stóð fyrir framan forna fjendur á samningafundinum.
Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfar karlalið Keflavíkur næstu tvö árin en hann stóð fyrir framan forna fjendur á samningafundinum.
Ívar Ásgrímsson þjálfar bæði karla- og kvennalið Hauka á næsta tímabili en hann var einnig ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í byrjun mánaðarins.
Lewis Clinch Jr., bandaríski leikmaður Grindavíkur, er mikilvægasti leikmaður Grindvíkinga í undanúrslitaeinvíginu á móti Njarðvík ef marka má tölfræðina úr fyrstu fjórum leikjunum.
Helgi Jónas Guðfinnsson kom örugglega mörgum Grindvíkingum á óvart í morgun þegar fréttist af því að einn af dáðustu sonum körfuboltans í Grindavík hefði ákveðið að taka við liði erkifjendanna úr Keflavík.
Stjarnan hefur gengið frá tveggja ára samningi við Hrafn Kristjánson sem tekur við af Teiti Örlygssyni sem þjálfari meistaraflokks karla í körfubolta.
Helgi Jónas Guðfinnsson, nýráðinn þjálfari Keflavíkurliðsins í Dominos-deild karla í körfubolta, ákvað að skella sér á starfið þegar honum var boðið það annað árið í röð.
Keflvíkingar voru ekki lengi að finna eftirmann Andy Johnston því félagið er búð að gera tveggja ára samning við Helga Jónas Guðfinnsson. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflvíkinga.
Víkurfréttir hafa heimildir fyrir því að Friðrik Ingi Rúnarsson verði kynntur sem þjálfari karla- og kvennaliðs Njarðvíkur í körfubolta á næstu dögum en þetta kemur fram á heimasíðu VF.
Teitur Örlygsson kvaddi Ásgarð á sunnudaginn eftir fimm og hálft tímabil sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Liðið náði ekki þeim stóra en endurskrifaði körfuboltasögu Garðabæjar í þjálfaratíð þessa mikla sigurvegara úr Njarðvík.
Oddaleik þarf í einvígi Njarðvíkur og Grindavíkur eftir sigur heimamanna í Ljónagryfjunni í kvöld.
"Þetta er hrikalega svekkjandi en að sama skapi er ég stoltur af strákunum að hafa gefið þessu séns. Við komumst ansi langt þrátt fyrir mörg áföll á leiðinni," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, svekktur eftir tapið gegn KR í kvöld.
"Þetta var frábær sigur á hörku góðu liði í hörku góðri stemmingu, hvar getur maður verið annars staðar en í skýjunum," sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR sáttur eftir sigurinn á Stjörnunní í kvöld. Sigurinn kom KR í úrslitaeinvígi Dominos-deildar karla.
KR tryggði sæti sitt í úrslitum Dominos-deild karla með naumum sigri á Stjörnunni í háspennuleik í Ásgarði. Þrátt fyrir að hafa klúðrað tækifærum á vítalínunni til að gera út um leikinn var það sóknarfrákast KR-inga þegar 3,2 sekúndur voru eftir sem gerði út um leikinn.
„Andy vildi ekki vera annað tímabil en ég held það sé bara best að hann svari því sjálfur af hverju það er.,“ segir Falur Harðarson, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur um bandaríska þjálfarann Andy Johnston sem yfirgaf félagið eftir tímabilið.
Grindvíkingar sýndu hvað í þeim býr í öruggum sigri á Njarðvík í Röstinni í kvöld. Grindvíkingar leiddu leikinn frá fyrstu mínútu og unnu að lokum verðskuldaðan sigur.
Pavel Ermolinskij segir að vandræði KR-inga gegn Stjörnunni í kvöld hafi byrjað með slökum varnarleik.
KR tapaði sínum fyrsta deildarleik í rúma fjóra mánuði í kvöld er Stjarnan náði að halda lífi í rimmu liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar.
Eins og margir bjuggust við þá hefur Andy Johnston verið leystur frá störfum sem þjálfari körfuboltaliða Keflavíkur.
Jón Arnór Stefánsson spilaði vel í mögnuðum sigri CAI Zaragoza gegn stórveldinu Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta um síðustu helgi.
Grindvíkingar með yfirburði og náðu að jafna rimmuna 1-1 áður en haldið er til Grindavíkur á föstudaginn.
KR er komið í 2-0 í undanúrslitaeinvígi sínu við Stjörnuna í Dominos deild karla í körfubolta eftir öruggan 68-94 sigur í kvöld. KR hitti á sinn besta dag og átti Stjarnan í raun aldrei möguleika í kvöld.
Jakob Örn Sigurðsson er rosalega ánægður og stoltur af litla bróður sínum Matthíasi Orra sem stóð sig frábærlega í Dominos-deildinni í vetur.
Fjölnir úr Grafarvogi spilar í Dominos-deild karla í körfubolta næsta vetur eftir sigur á Hetti í úrslitum umspilsins.
1-0 fyrir Njarðvík eftir góða frammistöðu í Grindavík.
KR-ingar tóku forystuna í undanúrslitaeinvíginu við Stjörnuna eftir þriggja stiga sigur í mögnuðum körfuboltaleik.
Ívar Ásgrímsson, þjálfari karlaliðs Hauka í Dominos-deildinni, var ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins í körfubolta.
Getur orðið fyrsti maðurinn til þess að vinna 100 leiki í úrslitakeppninni en KR og Stjarnan mætast í undanúrslitum Dominos-deildar karla í kvöld.
Israel Martin hefur gert þriggja ára samning við körfuknattleiksdeild Tindastóls og mun stýra liðinu í Domino's-deild karla á næsta tímabili.
Sverrir Þór Sverrisson verður áfram þjálfari Íslands- og bikarmeistara Grindavíkur í karlaboltanum og bætir við sig þjálfun kvennaliðsins á næsta tímabili.
Stjörnumaðurinn Justin Shouse er í sinni áttundu úrslitakeppni á Íslandi og orðinn 32 ára gamall. Það stoppaði hann ekki í að toppa sig í sópinu á Keflavík í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta.