Belgía

Belgía

Höfuðborg: Brussel. Mannfjöldi: 11,7 milljónir (2025). Flatarmál: 30.528 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Ís­lendingarnir næstum lent í stór­slysi vegna al­var­legra mis­taka

Mikil hætta var á ferðum á Brussel-flugvelli í gær þegar flugstjóri ætlaði að hefja þotu SAS til lofts á akbraut í stað þess að fara inn á flugbraut. Flugvélin hafði náð yfir 200 kílómetra hraða á klukkustund þegar henni var nauðhemlað. Farþegar sluppu vel frá atvikinu en þotan nam staðar skammt frá fjölda eldfimra eldsneytistanka.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fór í flug­tak af ak­braut og hafnaði úti á grasi

Flugvél SAS, sem átti að leggja af stað frá Brussel í Belgíu til Kaupmannahafnar í Danmerkur í gærkvöldi, fór aldrei í loftið eftir að vélin hafnaði í grasi utan brautar eftir tilraun til flugtaks af akbraut en ekki flugbraut. Farþegar voru um borð í vélinni sem var rýmd laust fyrir miðnætti í gærkvöldi og var farþegum útvegað pláss með öðru áætlunarflugi félagsins síðar.

Erlent
Fréttamynd

Þor­gerður mætt en sögu­leg fjar­vera Rubio vekur furðu

Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hittast á fundi í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Athygli hefur vakið að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hyggst ekki mæta á fundinn. Það er sögulega afar sjaldgæft að ráðherra Bandaríkjanna sjái sér ekki fært að mæta þegar ráðamenn NATO-ríkja hittast, en framkvæmdastjóri bandalagsins kveðst sýna fjarveru Rubio fullan skilning.

Erlent
Fréttamynd

Fyrr­verandi utanríkismálastjóri ESB hand­tekinn

Federica Mogherini, fyrrverandi utanríkismálstjóri Evrópusambandsins, er sögð ein þriggja einstaklinga sem voru handteknir í aðgerðum belgísku lögreglunnar í dag. Húsleit var einnig gerð hjá utanríkisþjónustu sambandsins en aðgerðirnar eru sagðar tengjast rannsókn á meintu misferli í útboði.

Erlent
Fréttamynd

Belgar óttast að þurfa að endur­greiða Rússum

Forsætisráðherra Belgíu segist ekki vilja leggja hald á frysta sjóði Rússa þar í landi. Hann óttast að Rússar muni höfða mál gegn Belgíu og að Belgar muni sitja uppi með skaðabótaskyldu. Þá segir ráðherrann, sem heitir Bart De Wever, að eignaupptakan gæti komið niður á friðarviðleitni varðandi innrás Rússa í Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Belgar kalla saman þjóðar­öryggis­ráð vegna drónaflugs við flug­velli

Þjóðaröryggisráð Belgíu kemur saman til neyðarfundar í dag vegna drónaflugs við flugvelli í landinu sem röskuðu ferðaáætlunum farþega og hefur valdið áhyggjum af öryggismálum. Rússar eru sagðir „mjög líklega“ bera ábyrgð á sífjölgandi atvikum þar sem óvelkomnir drónar hafa verið á sveimi í evrópskri lofthelgi síðan um miðjan september.

Erlent
Fréttamynd

Drónaumferð við her­stöð í Belgíu

Tvö kvöld í röð hafa drónar sést fljúga yfir herstöð í norðurhluta Belgíu. Lögreglan hefur málið til rannsóknar. Fjöldi dróna hefur sést yfir evrópskum flugvöllum síðustu mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola

Aðalsvið raftónlistarhátíðarinnar Tomorrowland í Belgíu varð eldi að bráð í dag aðeins tveimur dögum áður en hátíðin átti að hefjast. Hundruð þúsunda manns munu sækja hátíðina heim í bæinn Boom næstu tvær vikur.

Erlent
Fréttamynd

„Þetta er það sem að mann dreymdi um“

Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu, útilokar það ekki að þjálfa félagslið aftur einhvern daginn. Núna er hún hins vegar á stað sem hana dreymdi um að vera á þegar að hún var yngri og á sínu fyrsta stórmóti sem landsliðsþjálfari.

Fótbolti
Fréttamynd

Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“

Lykla­borðs­riddararnir voru fljótir að láta Elísa­betu Gunnars­dóttur, lands­liðsþjálfara Belgíu í fót­bolta, heyra það og sögðu henni að drulla sér frá Belgíu. Nýr veru­leiki þessa öfluga þjálfara sem segir fólk og fjölmiðla hafa fullan rétt á sínum skoðunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Ingvar E. valinn besti leikarinn í Belgíu

Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson hlaut í gær verðlaun sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni O (Hringur) á lokaathöfn alþjóðlegu BSFF kvikmyndahátíðarinnar í Brussel í Belgíu. Myndinni er leikstýrt af Rúnari Rúnarssyni og hún framleidd af Heather Millard.

Lífið
Fréttamynd

Jagúar, skraut­leg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“

Tveir menn sem fóru erlendis til þess að sækja gamla Jagúar-bifreið, sem innihélt mesta magn kristal-metamfetamíns sem fundist hefur hér á landi, áttu aðeins að fá hálfa milljón króna greidda fyrir. Götuvirði efnanna er sagt tvö hundruð milljónir króna. Mennirnir eru heimilislausir og bjuggu saman í bíl áður en þeir voru handteknir. 

Innlent
Fréttamynd

Belgísk verð­launa­leik­kona látin

Belgíska leikkonan Émilie Dequenne er látin, 43 ára að aldri. Umboðsmaður Dequenne segir hana hafa andast á sjúkrahúsi í úthverfi frönsku höfuðborgarinnar París í gærkvöldi.

Lífið