

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Áfrýjar búvörulagamálinu til Hæstaréttar
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að óska eftir leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, í máli sem varðar gildi breytinga á búvörulögum, beint til Hæstaréttar. Óbreyttur kemur dómurinn í veg fyrir að kjötafurðastöðvar séu undanþegnar samkeppnislögum.

Dagur strikaður niður um sæti
Dagur B. Eggertsson var strikaður út eða færður til á lista 1.453 sinnum sem gerir það að verkum að hann færist niður fyrir Þórð Snæ Júlíusson í þriðja sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Örfáir Sjálfstæðismenn strikuðu út Dag og ógildu þannig atkvæði sín.

Sósíalistar hefðu ekki komist inn í Noregi og Svíþjóð
Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus hefur legið yfir niðurstöðum kosninga með reiknistokkinn á lofti og niðurstöðurnar liggja nú fyrir. Dauð atkvæði í nýliðnum kosningum eru næstflest frá upphafi.

Beiðni um endurtalningu borist og talningarmenn á tánum
Talningarmenn í Suðvesturkjördæmi hafa verið beiðnir um að vera á tánum. Gestur Svavarsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi, segir í samtali við fréttastofu að það sé gert vegna umræðu um að það sé mjótt á munum í einhverjum kjördæmum.

Segir gríðarleg tregðulögmál að verki á þinginu
Píratar duttu út af þingi í þeim kosningum sem nú eru nýafstaðnar. Björn Leví Gunnarsson Pírati gerir upp þingsetu sína í pistli sem hann skrifar á Facebook-síðu sína.

Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar
Stjórnarmyndunarviðræðum formanna Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður framhaldið í dag.

Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum
Fundir Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, með formönnum flokkanna hefjast klukkan níu en fyrst til að sækja hana heim verður Kristrún Frostadóttir.

Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn
Stjórnarandstaðan bætti við sig tuttugu og fjórum þingsætum og vann Samfylkingin stærsta sigurinn og bætti við sig níu mönnum. Kjörsókn var 80,2 prósent, örlítið meiri en í síðustu þingkosningum. Margir möguleikar eru á þriggja flokka stjórn. Stefanía Óskarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði fór yfir niðurstöðurnar í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir eðlilegt að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fái stjórnarmyndunarumboð fyrst. Það vinni ekki margt með Sjálfstæðisflokknum svo hann geti gert kröfu um að fá það fyrst. Samfylkingin eigi að fá tilraun til þess að vinna úr því hann er stærstur flokka á þingi. Þetta kom fram í formannaspjalli við Heimi Má Pétursson eftir kvöldfréttir.

Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2
Formenn og leiðtogar flokka sem náðu inn á þing eða féllu af þingi í kosningunum í gær mæta í spjall hjá Heimi Má á Stöð 2 strax að loknum kvöldfréttum. Stjórnarflokkarnir þrír biðu afhroð í kosingunum en þrír stjórnarandstöðuflokkar með Samfylkinguna í broddi fylkingar unnu stóra sigra.

Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut afgerandi bestu kosningu sína í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi formanns og varaformanns flokksins. Willum Þór Þórsson, sem var ráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, datt út af þingi.

Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun
Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík suður segist, í grátklökku kveðjubréfi, líklega vera að setja Íslandsmet í að hætta í pólitík en nú er komið að leiðarlokum hjá þessari Facebookstjörnu Sjálfstæðisflokksins.

Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja
Viðburðarík kosningahelgi er senn á enda. Klisjan um að hvað sem er geti skeð í beinni útsendingu átti svo sannarlega við í kosningasjónvarpi gærkvöldsins.

VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti
Snærós Sindradóttir spyr þeirrar spurningar sem margir velta fyrir sér: Hvernig standa fjármálin hjá Vinstri grænum? Ekki vel segir Sunna Valgerðardóttir en kosningabaráttan var þó ekki rekin á yfirdrætti.

31 snýr ekki aftur á þing
Af 63 þingmönnum síðasta kjörtímabils hverfa 30 á braut þegar nýtt þing tekur til starfa.

Halla forseti hittir alla formennina á morgun
Halla Tómasdóttir forseti Íslands segist ætla að hitta alla formenn flokkanna á morgun, það er þeirra sem náðu inn á þing, með það fyrir augum að taka afstöðu til stjórnarmyndunarumboðs.

„Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“
Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna þakkar stuðningsfólki og samstarfsfólki sínu fyrir samvinnuna í færslu á Facebook fyrr í dag. Samkvæmt niðurstöðum úr Alþingiskosningum þurrkast flokkurinn alveg út af þingi og missir rétt sinn til árlegra fjárframlaga til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði.

Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka
Aldursforsetinn á næsta þingi, sú sem kom inn síðust sem jöfnunarþingmaður í Suðvestur, er Jónína Björk Óskarsdóttir fyrir Flokk fólksins. Hún segist ekki hafa séð þetta fyrir.

Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil
Fjórir stjórnarandstöðuflokkar bættu samtals við sig 24 þingsætum í alþingiskosningunum í gær á meðan ríkisstjórnarflokkar síðasta kjörtímabils guldu sameiginleg afhroð. Vinstri græn þurrkuðust út af þingi en Sjálfstæðisflokkur vann varnarsigur.

Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum
Formaður Sjálfstæðisflokksins segist klóra sér í hausnum yfir velgengni Flokks fólksins sem fjármálaráðherra til langs tíma. Margt sem flokkurinn hafi talað fyrir myndi kosta ríkissjóð verulega. Bjarni segir æskilegt að hægt yrði að sjá nánara niðurbrot atkvæða í kjördæmunum.

„Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er hvergi nærri af baki og lýsir því yfir að það séu ýmis stjórnarmynstur inni í myndinni. Hann lítur ekki á niðurstöður kosninganna sem einhvern sigur vinstrisins.

Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í Norðvesturkjördæmi en Flokkur fólksins flesta þingmenn. Sex flokkar fengu yfir tíu prósent atkvæða í kjördæminu og hvern sinn kjördæmakjörna þingmanninn.

Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða
Ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu samtals tæplega fjórðungi þeirra atkvæða sem þeir fengu í síðustu kosningum í Norðausturkjördæmi. Vinstri græn þurrkuðust út í kjördæmi sem var helsta vígi flokksins utan Reykjavíkur.

„Þannig fór um sjóferð þá“
„Þannig fór um sjóferð þá,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, um úrslit næturinn en ljóst þykir að Píratar eru dottnir út af þingi.

Framsókn: Það verður alltaf sviðasulta í kæliborðinu
Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks er einn þeirra sem býður upp á greiningu á stöðu mála nú að loknum kosningum. Hann segir Kristrúnu Frost Taylor Swift kosninganna.

Boltinn kominn til þeirra sem unnu kosningarnar
„Ákallið um breytingar er mikið og boltinn er þá kominn til þeirra sem unnu kosningarnar,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, þegar fréttastofa náði tali af honum fyrir stundu.

„Mjög skýrt ákall um breytingar“ segir Kristrún um stjórnarmyndun
„Ég held að það liggi alveg fyrir að það er mjög skýrt ákall um breytingar, niðurstöðurnar sýna það svart á hvítu,“ sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við fréttstofu rétt í þessu.

„Þjóðin er að refsa stjórnarflokkunum grimmilega“
Inga Sæland formaður Flokks fólksins sagði nú rétt í þessu, í viðtali við Kristján Kristjánsson á Sprengisandi, að kosingarnar væru sögulegar – þær eigi eflaust eftir að fara á spjöld sögunnar.

Nú reynir á konurnar þrjár
Menn halda áfram að rýna í niðurstöður kosninganna og ljóst þykir að um sögulegar kosningar hafi verið að ræða. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor er ein þeirra sem telur kosningaúrslit næturinnar sýna með óvíræðum hætti ákall um breytingar á stjórn landsins og nú reyni á konurnar þrjár sem sigruðu kosningarnar.

„Afhroð vinstrisins er rosalegt“
Egill Helgason sjónvarpsmaður rýndi í spilin í nótt og að hans sögn er afhroð vinstrisins rosalegt. Menn reyna nú að sjá fyrir hvaða ríkisstjórnarmynstur er inni í myndinni nú að loknum sannkölluðum jarðskjálftakosningum, líkt og Þorsteinn Pálsson Viðreisnarmaður og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í myndveri kosningasjónvarps Stöðvar 2.