Áhöfnin á Fiskabúrinu - Norðmönnum verður heilsað af sjómannasið
Stappfullt troll eftir þennan túr. Létt hjal auðvitað á sínum stað áður en farið var yfir Twitter vikunnar þar sem endakall twitter var greindur. Þórður leit um öxl eftir að loðnukvótanum var úthlutað og svo mætti Davíð Bjarnason til þeirra bræðra, enda ætla íslendingar að lemja norðmenn í Kaplakrika um helgina. Þetta og margt fleira í þætti dagsins.