Skiptar skoðanir á ESB
Utanríkisráðherra segir enn óákveðið hvenær efnt verður til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Í frétt sem dagblaðið Politico birti í morgun var haft eftir heimildarmönnum að atkvæðagreiðslan gæti farið fram í ágúst næstkomandi. Áður hafi verið stefnt að henni fyrir árið 2027, líkt og fram kemur í stjórnarsáttmála, en í ljósi aukinnar óvissu í alþjóðamálum hafi verið ákveðið að flýta henni.