Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið
Fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hækkar milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu og bæta báðir flokkar við sig tveimur prósentustigum. Samfylkingin er lang stærst með tæplega 28 prósent en Sjálfstæðisflokkur mælist með átján prósent. Fylgi annarra flokka lækkar ýmist eða stendur í stað. Miðflokkurinn tapar tveimur prósentustigum milli mánaða og mælist með rúm sextán prósent. Þá lækkar Viðreisn niður í tæp þrettán prósent en Flokkur fólksins stendur í stað með tæp sex. Framsókn mælist áfram með um sjö prósent, Píratar með tæplega fimm, Vinstri Græn með rúmlega fjögur og Sósíalistar með þrjú. Um er að ræða fylgi flokkanna á landsvísu og niðurstaðan byggir á tveimur könnunum sem voru annars vegar gerðar í lok mars og miðjum apríl.