Talinn hafa lekið trúnaðarupplýsingum um samtöl ráðamanna

Breska lögreglan hefur hafið sakamálarannsókn á meintum brotum stjórnmálamannsins Peter Mandelson, sem grunaður er um að hafa lekið opinberum gögnum og viðkvæmum upplýsingum til kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Mandelson er meðal annars talinn hafa lekið trúnaðarupplýsingum um samtöl ráðamanna í kjölfar efnahagshrunsins, þegar hann var viðskiptamálaráðherra. Birting nýjustu Epstein-skjalanna hefur varpað ljósi á náin samskipti þeirra og þingmenn þjörmuðu í dag að Keir Starmer, forsætisráðherra, vegna málsins.

1
01:14

Vinsælt í flokknum Fréttir