Alma sinnti sjúklingi í flugvél
Alma Möller heilbrigðisráðherra þurfti að rifja upp ekki svo gamla takta þegar maður veiktist um borð í flugvél á leið til landsins. Alma kom sjúklingnum til aðstoðar, ásamt öðrum lækni og hjúkrunarfræðingi, og honum var komið á sjúkrahús eftir lendingu.