Fótbolti

„Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitt­hvað mikið að“

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Gunnlaugsson segir að agabrotin í síðasta landsleikjaglugga heyri sögunni til.
Arnar Gunnlaugsson segir að agabrotin í síðasta landsleikjaglugga heyri sögunni til. vísir/Anton

„Ég fullvissa fólk um að þetta mun aldrei koma fyrir aftur. Ekki á minni vakt,“ segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í fótbolta um agabrotin sem leikmenn urðu uppvísir að í síðustu landsleikjatörn.

Agabrotin fólust meðal annars í ferð á pókerstað í Skeifunni eftir þriðja leik af fjórum í landsleikjatörninni, kvöldið áður en hópurinn hélt af stað til Eistlands í lokaleik tarnarinnar, og var áfengi haft um hönd.

Arnar var spurður að því á blaðamannafundi í dag hvort hann hefði hert reglur fyrir landsliðshópinn áður en að leikjunum við Búlgaríu og Lúxemborg 13. og 16. nóvember kemur.

„Nei. Það er búið að gera upp þetta leiðindamál sem kom upp í síðasta glugga og ég sé ekki ástæðu til að hengja einhvern reglulista upp á vegg. Strákarnir vita þetta og andskotinn hafi það, ef menn geta ekki hagað sér núna eftir það sem á undan er gengið þá er eitthvað mikið að. Ekki eitthvað sem einhverjar reglur munu bjarga,“ sagði Arnar og talaði því á sömu nótum og í viðtali við Vísi í síðasta mánuði.

„Erum við að fara að minna strákana á hver ábyrgð okkar er og hvað við ætlum að gera í þessum glugga? Já. En að setja einhverjar reglur upp á vegg… það fylgir því ákveðinn veikleiki að gera það og þá þarftu að framfylgja einhverjum ákveðnum reglum. Hvar endar það? Í staðinn fyrir að segja bara: „Strákar, við vitum til hvers við erum hérna. Hvað við erum að gera og hvað við þurfum að klára í þessum glugga.“ Líka bara hvað framtíðina varðar, í ykkar lífi sem atvinnumenn og persónur,“ sagði Arnar.

„Ég veit að þetta mál er að baki. Þetta var tæklað vel af leikmönnum, þjálfarateymi, stjórn KSÍ og öllum sem að þessu koma. Ég held að þetta mál sé ekki gleymt, af því að ég skil alveg áhyggjur stuðningsmanna af því að þetta gerist aftur. En ég fullvissa fólk um að þetta mun aldrei koma fyrir aftur. Ekki á minni vakt,“ sagði Arnar.


Tengdar fréttir

Arnar kynnti landsliðshópinn

Arnar Gunnlaugsson opinberaði landsliðshóp karla í fótbolta fyrir komandi leiki í Þjóðadeild karla í höfuðstöðvum KSÍ í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×