Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Eiður Þór Árnason skrifar 4. nóvember 2026 08:56 Abdul El-Sayed og eiginkona hans Sarah Jukaku voru að vonum glöð eftir að niðurstaðan varð ljós. aP/Julia Demaree Nikhinson Demókratinn Abdul El-Sayed sigraði Repúblikanan Mike Rogers í baráttunni um annað öldungadeildarsæti Michigan í þingkosningunum í gær. Hann vakti mikla athygli í kosningabaráttunni og er talinn einn af kyndilberum nýrrar kynslóðar Demókrata og vinstri arms flokksins sem sá framboð hans sem prófraun í einu mikilvægasta sveifluríki landsins.
El-Sayed sigraði þingkonuna Haley Stevens í forvali Demókrataflokksins en hún sneri baki við honum og lýsti yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í Michigan örfáum dögum fyrir kosningarnar. Stevens er nær hinni pólitísku miðju innan Demókrataflokksins en El-Sayed tilheyrir vinstri væng hans. Var þessi ákvörðun Stevens harðlega gagnrýnd af flokksmönnum Demókrata. Ekki gegnt kjörnu embætti El-Sayed tekur við þingsætinu af Demókratanum Gary Peters sem bauð sig ekki fram til endurkjörs. El-Sayed er sonur egypskra innflytjenda og verður fyrsti múslimski öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna. Hann starfaði áður sem embættismaður á sviði lýðheilsu og hefur aldrei áður gegnt kjörnu embætti. Hann tapaði forvali Demókrata í Michigan fyrir átta árum með tveggja stafa tölu en fór alla leið þetta árið. Sjálfur lýsti hann sér sem „ólíklegasta frambjóðandanum“ á kosningafundi í dag þegar hann lýsti yfir sigri í Detroit. „Takk fyrir. Þetta er allt út af ykkur.“ El-Sayed stóð frammi fyrir gríðarlegum fjárútlátum utanaðkomandi aðila, bæði í forvali Demókrata og í sjálfum kosningunum. Hann háði grasrótarbaráttu þar sem hann talaði fyrir greiðara aðgengi að heilbrigðisþjónustu og útilokun utanaðkomandi fjármagns í kosningabaráttu. Þá gagnrýndi hann stríðsrekstur Ísraels harðlega. Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og þar af fjögurra manna meirihluta í öldungaadeildinni, samkvæmt greiningu AP-fréttaveitunnar. Hefur flokkurinn náð sjö mönnum af Repúblikönum þegar þetta er skrifað en alls var kosið um 35 sæti af 100. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri. 4. nóvember 2026 07:40 Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár. 4. nóvember 2026 06:20 Draumur Demókrata að rætast Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. 4. nóvember 2026 04:48 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira
Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri. 4. nóvember 2026 07:40
Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár. 4. nóvember 2026 06:20
Draumur Demókrata að rætast Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. 4. nóvember 2026 04:48