Handbolti

Sigur­ganga Hauka heldur á­fram

Aron Guðmundsson skrifar
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sex mörk fyrir Hauka í kvöld.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sex mörk fyrir Hauka í kvöld. vísir/Ernir

Kvennalið Hauka heldur áfram að eiga fullkomið tímabil í Olís deild kvenna í handbolta. Liðið hafði betur gegn Gróttu í kvöld, lokatölur 27-22.

Sigurinn sér til þess að Haukar hafa unnið alla átta leiki sína í Olís deildinni til þessa. Eina liðið í deildinni sem er með fullt hús stiga og því á toppi deildarinnar. 

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var sem fyrr öflug í markaskorun fyrir Hauka. Hún endaði sem markahæsti leikmaður Hauka með sex mörk í kvöld.

Katrín S Scheving Thorsteinsson var hins vegar markahæsti leikmaður vallarins með sjö mörk. 

Eins og fyrr sagði eru Haukar á toppi deildarinnar, með 16 stig. Grótta er í sjöunda sæti með fjögur stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×