Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2026 18:52 Hótanirnar beindust meðal annars að flugvélum SAS. AP/Ole Berg-Rusten, NTB Scanpix Lenda þurfti sjö farþegaflugvélum í Evrópu í dag vegna sprengjuhótana. Þá barst einnig hótun gegn skemmtiferðaskipi en engar sprengjur hafa í kjölfarið fundist. Yfirvöld í nokkrum ríkjum Evrópu ætla að vinna saman að rannsókn málsins.
Hótanirnar sneru að tveimur flugvélum sem verið var að fljúga til Varsjár í Póllandi, tveimur sem var flogið til Sofia í Búlgaríu, tveimur sem verið var að fljúga til Rómar á Ítalíu og einni sem var flogið til Murcia á Spáni. Degi áður hafði hótun borist gagnvart flugvél sem verið var að fljúga til Sofia. Þá barst hótun gegn ísraelsku skemmtiferðaskipi við Grikkland. Flugvélarnar eru frá pólska flugfélaginu LOT, SAS, Wizz Air og Ryanair. Sprengusérfræðingar leituðu í öllum flugvélunum og í skemmtiferðaskipinu en engar sprengjur fundust. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á þessum hótunum og embættismenn í umræddum ríkjum hafa ekki bent fingrinum á meintan sökudólg, samkvæmt frétt Reuters. Í samtali við fréttaveituna segir áhætturáðgjafi að hótanirnar í dag séu einstakar. Umfang þeirra og það að þær virðist ekki hafa beinst að neinu tilteknu skotmarki bendi til þess að markmiðið hafi verið að valda almennum truflunum á flugi í Evrópu. Annar sérfræðingur slær á svipaða strengi við BBC og segir að sprengjuhótanir séu ekki algengar. Hann segir útlit fyrir að hótanirnar hafi verið metnar trúverðugar, sem bendi til þess að um sé að ræða markvissa aðgerð af hálfu eins aðila, fremur en fjölda tilkynninga úr misvísandi áttum. Þótt enginn hafi bent á mögulegan sökudólg eru spjótin strax byrjuð að beinast að Rússlandi, sem ráðamenn í Evrópu hafa um margra mánaða skeið sakað um það sem kallast fjölþátta ógnir og árásir í Evrópu. Þar er um að ræða margvísleg skemmdaverk, íkveikjur, sprengjuárásir og jafnvel banatilræði.
Flug Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Sjá meira