Sport

Rosa­legt pílukvöld á Sel­fossi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexander Veigar er í hörkuleik á morgun.
Alexander Veigar er í hörkuleik á morgun.

Annað kvöldið í úrvalsdeildinni í pílu fer fram annað kvöld og að þessu sinni verður keppt á Selfossi.

Við byrjum fyrstu viðureignina á pílukastaranum með stóra nafnið, Alexander Veigari Þorvaldssyni. Hann hefur verið okkar allra fremsti pílukastara undan farið. Nýkominn frá Evrópumeistaramótinu í pílukasti þar sem hann var hluti af liði Íslands sem náði besta árangri Íslands frá upphafi.

Mótherji hans er Kári Vagn Birkisson, U18 landsliðsmaður og mikið efni úr Kópavoginum, en hann er með bakið upp við vegg núna. Ekkert nema sigur er í boði fyrir hann, ef hann ætlar að halda sér í keppninni.

Báðir þessara keppenda eiga framtíðina fyrir sér. Alexander Veigar gengur inn með Many men með 50 Cent og er Kári Vagn með Hetjuna með Huginn og Hr. Hnetusmjöri.

Mottan mætir á sviðið

Í annarri viðureign kvöldsins er það gamla brýnið með mottuna sem allir karlmenn öfunda hann af, Vitor Charrua. Mótherji hans er að mæta í fyrsta skiptið á SÝNarsviðið.

Hallgrímur Smári Skarphéðinsson, Halli Smári, er búinn að vera að spila frábærlega þetta árið og eitt er víst að Vitor þarf að hafa sig allan við ef hann ætlar ekki að tapa þessum leik.

Stemningsspilarinn Vitor röltir inn með Tequila, akrieoke laginu sínu og er Halli Smári með Ég ætla að skemmta mér með Albatross.

Geitin fær alvöru leik

Halli Birgis (Haraldur Birgisson) og geitin, ellefufaldur Íslandsmeistari í pílukasti, Guðjón Hauksson, mætast í þriðja leik kvöldsins.

Þeir sem hafa fylgst með pílunni hér heima þekkja báða þessa kappa. Halli Birgis er þrautreyndur landsliðsmaður og núverandi þjálfari U18 landsliðsins. Guðjón, ásamt Friðriki Jakobssyni, er fyrrverandi Norðurlandameistari í tvímenningi í pílukasti. Afrek sen enginn annar Íslendingur hefur komist nálægt að jafna. Halli Birgis valdi sér lag sem allir hafa sungið með. Sweet Caroline í flutningi Dj Ötzi meðan Gaui er með Grindavíkurslagarann, Þeir skora.

Hvað gerir ungi drengurinn?

Fjórði leikur kvöldsins er viðureign Kristjáns Sigurðssonar, landsliðsmanns og fyrrum landsliðsþjálfara, og Andra Dags Sigurjónssonar, 16 ára gömlum U18 landsliðsmanni.

Hérna mætast reynslan og framtíðin. Kristján hefur staðið sig vel með landsliðinu, bæði sem þjálfari og keppandi og Andri Dagur kemur hungraður inn í þessa viðureign.

Tilbúinn að sýna sig á stóra sviðinu. Og sýna að hann sé tilbúinn og óhræddur við gömlu refina. Hérna reynir á Kristján að halda haus því ef hann gætir sín ekki á Andra Degi er voðinn vís. Andri Dagur labbar inn undir laginu Gémmer með XXX Rottweiler hundum meðan Kristján er með For Whom the Bell Tolls með Metallica.

Pílukvöldið verður í beinni á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×