Skoðun

Far­sælt ferða­lag fólks og villts fisks

Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar

Í nýlegri grein sinni, „Farsælt ferðalag fólks og fisks” á visir.is, færir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, sterk rök fyrir því að sjávarútvegur og ferðaþjónusta styðji hvort annað. Þar erum við sammála, sjávarútvegur og ferðaþjónusta eiga mjög vel saman. Í greininni gleymdist þó að taka fram hvers konar sjávarafurðir var verið að vísa í. Öll dæmin snúa að veiðum á villtum fiski. Því finnst mér rétt að árétta að samlegð ferðaþjónustu og sjálfbærs sjávarútvegs er mikil. Því hefði verið gott að taka fram að sjálfbærar veiðar á villtum fiski styðji við ferðaþjónustu. Hvergi er minnst á laxeldi í opnum sjókvíum, og ekki að ástæðulausu: það vinnur þvert á móti gegn hagsmunum ferðaþjónustunnar, SFS og ekki síst orðspori Íslands.

Náttúran er það dýrmætasta sem við eigum

Heiðrún bendir á að ferðamenn komi ekki til Íslands vegna matarins. Í könnun Maskínu sem hún vitnar í nefndu aðeins 15% ferðamanna mat sem þátt í ákvörðun sinni um Íslandsferð. En hvað með hin 85%?

Óhætt er að fullyrða að ósnortin náttúra Íslands vegi þar þyngst í ákvarðanatöku ferðamanna um komu sína til landsins. Sú náttúra á undir högg að sækja ef opnar sjókvíar blasa við í friðsælum fjörðum hringinn í kringum landið.

Undanfarin fjögur ár hef ég byggt upp ferðaþjónustufyrirtæki þar sem forsenda upplifunnar gesta okkar er ósnortin náttúra utan alfaraleiðar og eru vinsælustu ferðirnar í Seyðisfirði.

Viðskiptavinum sem fagna því að ekki sé eldi í opnum kvíum í firðinum fjölgar hratt og tel ég þá afstöðu endurspegla aukna vitundarvakningu neytenda um greinina. Eins virðast sífellt fleiri forðast að kaupa vörur úr sjókvíaeldi. Vegna þessa munu opnar sjókvíar í firðinum gjörbreyta rekstrargrundvelli okkar og gætu haft neikvæð áhrif á afkomu fyrirtækisins. Það er nefnilega þannig að gestirnir okkar koma til Íslands til að upplifa ósnerta náttúru og kyrrð.

Ímynd íslensks sjávarfangs hvílir á sömu stoðum og íslenska ferðaþjónustan: villtu sjávarfangi, hreinu hafi, óspilltri náttúru og sjálfbærum veiðum. Það er sú ímynd sem ferðamenn koma til að upplifa. Laxeldi í opnum sjókvíum er ekki hluti af henni eins og kemur skýrt fram í rannsóknarvinnu Ian Urbina fyrir New York Times í greininni „The Dirty Secret Behind the Farmed Fish You Eat.“

Orðsporið í hættu

Heiðrún hóf grein sína á því að minna okkur á að orðspor landsins og afurða þess ráði miklu um árangur útflutningsgreina. Það er hárrétt, og einmitt þess vegna eigum við að leggja okkur fram um að allur sjávarútvegur á Íslandi sé unnin í sátt við náttúruna.

Skortur á gögnum er ekki grænt ljós

Því hefur einnig verið haldið fram að engin gögn sýni að sjókvíaeldi og ferðaþjónusta eigi ekki samleið. Skortur á gögnum gefur ekki grænt ljós til að halda leyfisveitingum áfram. Ef stjórnvöld telja gögnin vanta er það þeirra hlutverk að afla þeirra, áður en frekari leyfi eru veitt en ekki eftir á. Hér er líka gott að minna á að 75% Seyðfirðinga hafa lýst yfir eindreginni andstöðu við fyrirhugað sjókvíaeldi í firðinum og ríflega 13 þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli. Hér þurfa stjórnvöld eins og Heiðrún bendir réttilega á að horfa á heildarmyndina og hlusta á fólkið í landinu. Getum við ekki öll verið sammála um það?

Verjum störfin

Því er gjarnan haldið fram að sjókvíaeldi skapi störf á landsbyggðinni. Á landsbyggðinni eru líka störf í ferðaþjónustu og tengdum greinum, við stangveiði og í hefðbundnum sjávarútvegi sem gætu verið í hættu. Laxveiðiár draga til sín verðmæta gesti og skapa tekjur sem dreifast um sveitirnar.

Á Fáskrúðsfirði t.d. eins og í mörgum öðrum sjávarplássum, eru gerðir út línubátar, og línufiskur er eftirsótt gæðavara sem selst á góðu verði á mörkuðum, er það ekki t.d. eitthvað sem við ættum frekar að gera á Seyðisfirði? Sjávarútvegur af því tagi fellur fullkomlega að þeirri mynd sem Heiðrún dregur upp: hágæða afurð, störf í heimabyggð og töluvert minni árekstrar við náttúruna. Hagsmunir sjálfbærs sjávarútvegs og ferðaþjónustu fara nefnilega vel saman.

Heiðrún lýkur grein sinni á því að markmið stjórnvalda hljóti að vera að styrkja þær stoðir sem verðmætasköpunin byggist á, frekar en að veikja þær. Við sem störfum í ferðaþjónustu tökum að ég held öll heils hugar undir það. Sterkasta stoðin, bæði fyrir ferðaþjónustu og sjávarútveg er ósnortin náttúra Íslands.

Höfundur er leiðsögumaður og hönnuður.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×