Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Árni Sæberg skrifar 30. október 2026 09:30 Guðbjörg Matthíasdóttir er stærsti hluthafi Ísfélagsins, sem á stóran hlut í fiskeldisfélaginu Kaldvík, sem starfar á Austjförðum. Vísir Austur Holding AS hyggst, með fyrirvara um endanlega samningsgerð, veita ábyrgð að fjárhæð 25 milljónir evra, um það bil 3,4 milljarða króna, vegna lánasamnings Kaldvik AS við lánveitendur sína. Ísfélag hf. er 43,4 prósenta hluthafi í Austur Holding AS. Kaldvík stefnir á stóra hlutafjáraukningu á yfirstandandi ársfjórðungi.
Þetta segir í tilkynningu Ísfélagsins til Kauphallar, með vísan til fyrri tilkynningar Kaldvíkur um niðurstöðu samningsumleitana félagsins við lánardrottna. Þann 1. október síðastliðinn greindi Kaldvík frá því í tilkynningu til Kauphallar að félagið hefði gert samkomulag við lánardrottna sína um undanþágu frá skilmálum varðandi fjármögnunarsamninga félagsins. Marglyttur hefðu valdið tjóni í eldi félagsins í Reyðarfirði sem hefði haft áhrif á framleiðslu og fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Meðal annars hafði félagið ekki uppfyllt skilyrði um lágmarkslausafjárstöðu. Í tilkynningu Kaldvíkur segir að samkvæmt endurfjármögnunarsamningi við Arion banka, DNB, Landsbankann og Nordea muni heildarfjárhæð skuldbindinga samkvæmt tímabundnu láni og lánalínu nema um 232 milljónum evra, samanborið við um 207 milljónir evra samkvæmt núverandi lánasamningum. Þá segir að endurfjármögnunin sé meðal annars háð því að félagið ljúki hlutafjáraukningu með að fjárhæð minnst 97 milljónum evra, sem gert sé ráð fyrir að skili félaginu að minnsta kosti 70 milljónum evra í hreinu handbæru fé eftir endurgreiðslu eða uppgjör víkjandi skulda við hluthafa og viðskiptakostnað. Gert sé ráð fyrir að fyrirhugaðri hlutafjáraukningu ljúki á 4. ársfjórðungi 2026. Hyggist Ísfélagið halda jafnstórum eignarhlut í Kaldvík eftir hlutafjáraukningu þyrfti félagið að taka þátt í henni fyrir minnst 28 milljónir evra, eða sem nemur 3,8 milljörðum króna.
Ísfélagið Sjókvíaeldi Noregur Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Sjá meira