Bíó og sjónvarp

And­lát Panettiere úr­skurðað sem slys

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hayden Panettiere lést þann 16. ágúst síðastliðinn af ofskömmtun.
Hayden Panettiere lést þann 16. ágúst síðastliðinn af ofskömmtun. Getty

Lögregla hefur lokið rannsókn sinni á andláti leikkonunnar Hayden Panettiere og úrskurðað það sem slys. Panettiere lést í ágúst af of stórum skammti eftir að hafa tekið oxycodone-pillu sem var menguð með fentanýli.

Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá endalokum rannsóknar á andláti Hayden Panettiere sem lést á heimili sínu í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst síðastliðinn eftir að hafa farið í hjartastopp. 

Sjá einnig: Bestu hlutverk Hayden Panettiere

Lögreglan í Greenville hefur greint frá því að hún „hafi lokið rannsókn“ á andláti Panettiere og vísaði til niðurstöðu dánardómstjóra sem sagði eitrunaráhrif af völdum fentanýls, Xanax og nokkurra annarra lyfja hafa dregið leikkonuna til dauða. Auk fyrrnefndra lyfja mældist einnig vöðvaslakandi lyfið methocarbamol og geðrofslyfið quietapine.

„Út frá niðurstöðum réttarmeinafræðings og rannsóknarniðurstöðum hefur andlát Hayden Panettiere verið úrskurðað sem slys,“ sagði í yfirlýsingu lögreglunnar.

Samkvæmt heimildum BBC þá hafði bandaríska fíkniefnalögreglan einnig tekið þátt í rannsókninni en ekki liggur fyrir hvort þeirra hlut í málinu sé lokið.

Panettiere hafði glímt við fíknivanda í mörg ár en verið edrú í smá tíma áður en hún féll skömmu fyrir andlát sitt. Panettiere var barnastjarna sem ólst upp í Hollywood og lýsti hremmingum sínum í bransanum í ævisögu sinni, This Is Me: A Reckoning, sem kom út fyrr á árinu.


Tengdar fréttir

Barnastjörnurnar sem Hollywood brást

Leikkonan Hayden Panettiere lést á sunnudaginn, aðeins 36 ára gömul, en hún er ein af mörgum barnastjörnum sem sködduðust við að alast upp í Hollywood og báru þess aldrei bætur. Börn sem frá unga aldri eru berskjölduð fyrir gráðugum og stjórnsömum foreldrum, bransafólki sem misnotar stöðu sína, stöðugu áreiti fjölmiðla og auðveldu aðgengi að vímuefnum.

Lög­maður kærasta Panetti­ere með yfir­lýsingu um and­látið

Lögmaður Brian Hickerson, kærasta bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna andláts Panettiere. Þetta er í fyrsta sinn Hickerson eða lögmaður hans tjá sig opinberlega eftir að Panettiere fannst látin síðastliðinn sunnudag.

Kærastinn var á staðnum

Kærasti Hayden Panettiere og bróðir hans voru í íbúðinni þegar hún lét lífið um helgina. Þeir tóku á móti fyrstu lögregluþjónunum sem mættu á staðinn, en um er að ræða íbúð í eigu fjölskyldu þeirra í Greenville í Suður-Karólínu. Bræðurnir fylgdust með endurlífgunartilraunum sjúkraflutningamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.