„Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 31. október 2026 08:02 Þrjár kynslóðir markaskorara fyrir Ísland. Eiður er með 26 mörk, Arnór með 14 og Andri Lucas er kominn upp í 12. vísir/Anton & Getty Andri Lucas Guðjohnsen hefur ekki bara verið að spila vel fyrir Blackburn því hann er líka búinn að vera heitur í íslenska landsliðsbúningnum. Hann skoraði tvö mörk í síðasta landsleikjaglugga. „
Síðasti landsleikjagluggi var svolítið sérstakur. Vorum lengi saman og þetta var ný upplifun. Þetta var önnur rútína. En þetta er geggjaður hópur og alltaf gaman að hitta strákana. Ég var ánægður með sjálfan mig í glugganum líka og vonandi vinnum við riðilinn í næsta glugga,“ segir Andri Lucas um fjögurra leikja landsleikjagluggann á dögunum. Hann er búinn að skora tólf mörk fyrir landsliðið í 43 leikjum. Það er enn nokkuð í að hann nái pabba sínum, Eiði Smára, en hann skoraði 26 mörk fyrir landsliðið á sínum tíma. Hann er aftur á móti farinn að anda ofan í hálsmálið á afa sínum, Arnóri Guðjohnsen, sem skoraði fjórtán landsliðsmörk. „Ég sá eftir síðasta verkefni að það væri ekki svo langt í afa. Ég er ekkert sérstaklega mikið að hugsa um fjöldann eða markamet. Ég hef alltaf tekið einn leik í einu. Vonandi kemst ég nálægt markametinu og það væri geggjað að slá það met. Við Orri Óskars erum herbergisfélagar og saman í þessu,“ segir markamaskínan en Orri Steinn er einnig búinn að skora tólf landsliðsmörk og þeir félagar eiga mörg ár eftir í landsliðinu. „Mér finnst skrítið að segja að það sé ekki markmiðið að slá markametið. Auðvitað er það markmiðið og ég er mikill markaskorari sem leikmaður. Það væri geggjað ef það gengi upp. Ef það koma aftur á móti 2-3 landsleikir í röð sem ég skora ekki í þá missi ég samt ekkert vitið og fókus.“ Hlusta má á viðtalið við Andra í heild sinni hér að neðan.
Fótbolti Enski boltinn Landslið karla í fótbolta Tengdar fréttir „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Að eiga þekktan föður sem náði langt í fótbolta getur verið erfitt. Andri Lucas Guðjohnsen segir það aftur á móti ekki lengur trufla sig að vera nefndur í sömu andrá og faðir hans, Eiður Smári. 29. október 2026 08:00 „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Það snýst allt um Gudjohnsen í Blackburn þessa dagana enda hefur Andri Lucas Guðjohnsen farið á kostum með liðinu síðustu vikur og raðað inn mörkum. 28. október 2026 12:02 Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Sjá meira
„Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Að eiga þekktan föður sem náði langt í fótbolta getur verið erfitt. Andri Lucas Guðjohnsen segir það aftur á móti ekki lengur trufla sig að vera nefndur í sömu andrá og faðir hans, Eiður Smári. 29. október 2026 08:00
„Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Það snýst allt um Gudjohnsen í Blackburn þessa dagana enda hefur Andri Lucas Guðjohnsen farið á kostum með liðinu síðustu vikur og raðað inn mörkum. 28. október 2026 12:02