Íslenski boltinn

Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Augun á Kópavoginum? Magnús Már og Arnar Grétars eru báðir orðaðir við stöðuna.
Augun á Kópavoginum? Magnús Már og Arnar Grétars eru báðir orðaðir við stöðuna. Vísir

Arnar Grétarsson er meðal þeirra sem orðaður er við þjálfarastarf Breiðabliks. Hann hefur ekki heyrt frá félaginu en segir starfið spennandi. Magnús Már Einarsson segist ekki hafa fundað með Blikum.

Arnar er meðal þeirra sem orðaður er við starfið hjá Breiðabliki og samkvæmt stuðlum Epicbet er stuðullinn lægstur á að hann taki við starfinu, 3,00 sem stendur.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að Breiðablik væri hans draumastarf, enda þar uppalinn. Sigurður sagðist þó vera ánægður hjá Þór og hann gerði ekki ráð fyrir að heyra frá Blikum.

Arnar Grétarsson hefur áður stýrt Blikum frá 2015 til 2017 og var leikmaður liðsins frá 1988 til 1997 og milli 2006 og 2009.

Arnar segist eiga regluleg samtöl við menn í kringum félagið, enda þekkir hann þar hvern kima hafandi verið þar sem leikmaður og þjálfari.

„Ég hef ekki heyrt í þeim formlega ennþá,“ segir Arnar í samtali við íþróttadeild Vísis.

Arnar segir starfið sannarlega vera heillandi.

„Það hefur margt breyst frá því að ég var þarna síðast árið 2015 og það halda áfram að koma upp margir spennandi leikmenn í góðu starfi Breiðabliks. Þetta er eitt mest spennandi starf sem í boði er hér á landi,“ segir Arnar sem hefur auk Breiðabliks stýrt KA, Val og síðast Fylki í fyrrasumar hér á landi.

Magnús segir no komment

„Það er eiginlega bara no komment á allt,“ segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar. „Ég er bara samningsbundinn Aftureldingu og er mjög ánægður þar. Þar er ég bara að undirbúa næsta tímabil.“

Afturelding komst upp í Bestu deildina með sigri í Lengjudeildinni í sumar og þá komst liðið jafnframt alla leið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem liðið tapaði einmitt fyrir Breiðabliki.

Inntur eftir frekari svörum sagðist Magnús vera glaður hjá sínu félagi í Mosfellsbænum og hygði ekki á brottför eins og sakir standa. Breiðabliksstarfið væri vitaskuld spennandi starf. Magnús sagði ekki hafa fundað með Blikum og ef þeir vildu fá hann til starfa þyrfti að fara í gegnum Aftureldingu.

„Þeir þurfa þá að fara í gegnum Aftureldingu og fá leyfi fyrir viðræðum fyrst. Auðvitað er Blikastarfið spennandi en minn hugur er bara við það að byggja upp lið til að takast á við komandi átök í Bestu deildinni.“

Magnús hefur tengingu við Kópavoginn þar sem bróðir hans, Anton Ari Einarsson, er markvörður Breiðabliks.

Magnús hefur þjálfað Aftureldingu frá árinu 2019. Samningur hans rann út síðasta haust í Mosfellsbænum áður en hann ákvað að framlengja í Mosfellsbæ en hafði þá meðal annars átt fund með HK.

Ekki náðist í Jökul Elísabetarson við vinnslu greinarinnar en hann er einnig orðaður við starfið í Kópavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×