Sport

Yfir átta­tíu er­lendir skautarar svífa um í Laugar­dal

Sindri Sverrisson skrifar
Fremstu skautastelpur landsins keppa við fjölda erlendra keppenda í Laugardalnum næstu daga.
Fremstu skautastelpur landsins keppa við fjölda erlendra keppenda í Laugardalnum næstu daga. Samsett/ÍSS

Stórt og mikið alþjóðlegt listskautamót hefst í Skautahöllinni í Laugardal í dag og stendur yfir fram á sunnudag.

Um er að ræða Northern Lights Trophy sem nú verður haldið í þriðja sinn hér á landi á vegum Skautasambands Íslands.

Alls taka um 140 skautarar þátt í mótinu og þar af eru yfir 80 erlendir keppendur. Þeim til viðbótar sækja um 100 fylgdarmenn mótið. Ætla má að mesti hasarinn verði annað kvöld á milli klukkan 18 og 21:45 sem og á laugardag frá klukkan 13.30 og fram á kvöld.

Áhorfendum gefst meðal annars tækifæri til að sjá fremstu skautara landsins, þar á meðal Elínu Kötlu Sveinbjörnsdóttur sem nýlega tryggði sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti unglinga. Hún setti þrjú Íslandsmet á Northern Ligths Trophy fyrir ári síðan.

Keppnisdagskráin er fjölbreytt alla fjóra dagana, þar sem erlendir og íslenskir skautarar keppa í mismunandi aldurs- og getuflokkum.

Í dag og á morgun fer meðal annars fram keppni í Advanced Novice, stúlknaflokki, auk stuttra prógramma í Junior- og Senior-flokkum. Á laugardaginn verður svo keppt til úrslita í Senior-flokkum kvenna og karla og Junior-flokki kvenna. Mótinu lýkur svo með Interclub-keppni fyrir yngri skautara á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×