Erlent

Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Danski fáninn og brjóstmynd af Hitler.
Danski fáninn og brjóstmynd af Hitler. Danska ríkisútvarpið

Lögregla í Svíþjóð fann 31 skotvopn, meira en fjórtán þúsund skotfæri og mikið safn muna tengdra nasistum við húsleit hjá 37 ára dönsk-sænskum manni í Gullringen nærri Kalmar í Svíþjóð.

Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar nú í nóvember.

Danska ríkisútvarpið hefur fengið aðgang að rannsóknargögnum sænsku lögreglunnar, sem nema meira en tvö þúsund blaðsíðum.

Málið hófst þegar lögreglumenn urðu varir við manninn og bróður hans í Gullringen skömmu fyrir síðustu áramót. Samkvæmt lögregluskýrslu þótti maðurinn óvenju taugaveiklaður og sýna merki um fíkniefnaneyslu.

Lögregla ákvað í kjölfarið að gera húsleit.

Brjóstmynd af Hitler og hakakrossar

Við leitina á heimili mannsins og í geymsluhúsnæði sem hann hafði aðgang að fundust alls 31 vopn og meira en fjórtán þúsund skotfæri. Þar á meðal voru sex haglabyssur, þrjár hálfsjálfvirkar skammbyssur og tveir hálfsjálfvirkir rifflar.

Lögreglumenn fundu einnig stóra fána með hakakrossum, merki SS-sveita, nasistabúninga og brjóstmynd af Adolf Hitler. Lítill danskur fáni var hafður við hlið brjóstmyndarinnar.

Þessir voru á meðal muna sem maðurinn hafði til sýnis.Danska ríkisútvarpið

Varsla slíkra muna er ekki ólögleg í Svíþjóð og maðurinn er því ekki ákærður vegna þeirra. Hann er hins vegar meðal annars ákærður fyrir vörslu á sprengjuhylki, tólf táragasblysum, 96 merkjaskotum og kveikiþráðum.

Hann hafði áður einnig verið grunaður um að hafa haft nokkrar dýnamítstangir undir höndum en sá liður rataði ekki í ákæruna.

Saksóknarinn Jacob Semark hefur lýst haldlagningunni sem einni þeirri umfangsmestu á vopnum sem gerð hefur verið í Svíþjóð.

„Dauði yfir alla Gyðinga“

Við rannsókn málsins fór lögregla einnig í gegnum síma mannsins og samskipti hans við mann sem hann lýsti sem fyrrverandi samstarfsmanni með sameiginlegan áhuga á síðari heimsstyrjöldinni.

Maðurinn skrifaði meðal annars orð sem þýða mætti sem „dauði yfir alla Gyðinga“ og ræddi við vin sinn um að halda upp á afmælisdag Hitlers 20. apríl með góðum mat og skála fyrir „foringjanum“.

Safn fána frá Þýskalandi nasismans átti maðurinn sömuleiðis.Danska ríkisútvarpið

Í myndskeiði sem maðurinn tók á heimili sínu í desember 2024 sýndi hann einnig safn nasistamuna. Samkvæmt endurriti lögreglu lauk myndbandinu á nasistakveðju og orðunum „Heil Hitler“ og „dauði yfir alla Gyðinga“.

Maðurinn neitar því hins vegar að vera nasisti.

„Ég er alls ekki nasisti. Þetta er bara í gamni,“ sagði hann við yfirheyrslu lögreglu, samkvæmt gögnum DR.

Hann segir áhuga sinn á mununum vera söfnunaráhuga sem nái aftur til barnæsku og segist einnig safna munum tengdum kommúnismanum.

Langafi hans var SS-foringi

Faðir mannsins hefur staðfest við lögreglu að fjölskyldan hafi lengi haft mikinn áhuga á vopnum og veiðum. Hann sagði jafnframt að langafi hins ákærða hefði verið foringi í SS-sveitum nasista og að það skýrði að hluta hvers vegna sonurinn hefði nasistamuni undir höndum.

Hinn ákærði segir vopnin að stórum hluta hafa komið frá látnum frænda sínum í Danmörku. Frændinn hafi komið með vopn í heimsóknir til Svíþjóðar og maðurinn sjálfur hafi einnig tekið vopn með sér frá Danmörku. Hann hafði ekki tilskilin leyfi fyrir vopnunum.

Maðurinn hefur viðurkennt brot á vopnalögum en hafnar því að brotið eigi að teljast gróft. Hann er ekki ákærður fyrir að hafa ætlað að nota vopnin til árásar. Réttarhöld í málinu fara fram í Kalmar í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×