Innlent

Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Alþingi, þingfundur, Alþingishús, Austurvöllur, María Rut Kristinsdóttir
Alþingi, þingfundur, Alþingishús, Austurvöllur, María Rut Kristinsdóttir Vísir/Vilhelm

Varaformaður þingflokks Viðreisnar segist ekki hafa sóst eftir því að verða gerð að þingflokksformanni. Aðspurð hvernig hún svari gagnrýni Jóns Gnarr segir hún að engar athugasemdir hafi verið gerðar við stöðu hennar innan þingflokksins að henni vitandi.

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar sem á dögunum sagði sig úr þingflokknum, hefur í viðtölum sagt að sér þyki óeðlilegt að varaformaður þingflokksins, María Rut Kristinsdóttir, sem um tíma var starfandi þingflokksformaður, sé eiginkona aðstoðarmanns formannsins, Ingileifar Friðriksdóttur.

María Rut hefur verið starfandi varaformaður þingflokks síðan í desember 2024 og nokkrum sinnum sinnt formennsku í fjarveru formannsins.

„Og svo núna í haust þegar það lá við að formaður þingflokksins væri kominn í veikindaleyfi þá steig ég inn í það hlutverk eins og mér ber að gera sem varaformaður og gerði mitt besta í því að halda störfum þingflokksins gangandi. Það auðvitað voru fjárlög þarna bara stuttu eftir og við þurftum að skipuleggja okkur vel og eiga samskipti við minnihluta og annað og ég sinnti bara þeim störfum eins vel og ég gat,“ segir María Rut.

Og voru gerðar einhverjar athugasemdir við það að þú sinntir þessari stöðu eða eitthvað slíkt áður en Jón stígur þarna fram opinberlega?

„Það voru ekki gerðar athugasemdir við það þegar að ég kom þarna inn en skiljanlega þurfti kannski að fara að taka ákvörðun um það hvernig framhaldið yrði. Ég sóttist ekki eftir því að vera þingflokksformaður, svo það sé bara tekið fram.“

Engar athugasemdir komið fram að henni vitandi

„Ég hef verið bara ánægð með það að vera formaður umhverfis- og samgöngunefndar og er þingmaður í stóru kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, og vil einbeita mér að því. Þannig að ég sóttist ekki eftir því að vera þingflokksformaður þegar það kom í ljós að það yrðu skipti í því hlutverki.“

Aðspurð hvort það sé óheppilegt að hún sé varaformaður þingflokksins í ljósi tengsla hennar við aðstoðarkonu formannsins segist hún ekki hafa orðið vör við slíkt tal.

„Það hafa allavega ekki komið fram neinar athugasemdir um það og auðvitað er það þannig að á okkar heimili erum við líka bara með okkar reglur um það hvernig við eigum okkar samskipti og konan mín sinnir sínu hlutverki af kostgæfni og ég er ekkert inni í því hvað er að gerast í ráðuneytinu dagsdaglega.“

Ferðaðist á eigin vegum

María Rut er nýkomin frá Víetnam þar sem hún fylgdi formanni flokksins og eiginkonu sinni í opinbera heimsókn. Hún segist hafa verið þar á eigin vegum, verið í launalausu leyfi á meðan og greitt fyrir allt uppihald úr eigin vasa. Ástæða þess að hún fór með hafi verið sú að á milli vinnuferða formannsins til Víetnam og Kína hafi skapast nokkurra daga frí og ekki ráðlagt að fara heim í millitíðinni með tilheyrandi ferðakostnaði. Því hafi hjónin ákveðið að taka frí saman.

„Það þykir kannski fréttnæmt að við hjónin komumst saman í frí en þessi tímasetning var auðvitað bara eins og hún var vegna þess að þetta er löngu planað.“

En er tímasetning ferðarinnar ekki óheppileg í ljósi alls sem gengur á?

„Já, eins og ég segi þá er þessi ferð plönuð með löngum fyrirvara og þarna er um að ræða mikilvægar heimsóknir ráðherra til landa sem búast við því að ráðherra sé að mæta þannig að það að hætta við slíkt er auðvitað meira en að segja það. Auðvitað get ég alveg sagt það að hugurinn var heima allan tímann og ég fylgdist nú með Þorgerði, formanni flokksins, vera í vinnunni allan tímann, tala við fólkið og halda hlutunum gangandi.“


Tengdar fréttir

Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam

Edit Ómarsdóttir tók í gær sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Hún skipaði 2. sæti á lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi í kosningunum 2024. Oddvitinn er í fríi í Víetnam. 

Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar

Jón Gnarr hefur sagt skilið við þingflokk Viðreisnar. Forseti Alþingis tilkynnti um breytinguna við upphaf þingfundar klukkan hálf tvö en hálftíma fyrr hafði Vísir greint frá plönum Jóns. Formaður flokksins sér á eftir Jóni sem ætlar að styðja ríkisstjórnina áfram til góðra verka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×