Innherji

Þakkar hóf­legum launa­hækkunum að Svíar gátu lækkað vexti hraðar

Hörður Ægisson skrifar
Per Jansson, varaseðlabankastjóri sænska seðlabankans, þakkar hóflegum launahækkunum á árunum þegar verðbólgan var mikil að tekist hafi að ná verðbólgunni hratt niður. 
Per Jansson, varaseðlabankastjóri sænska seðlabankans, þakkar hóflegum launahækkunum á árunum þegar verðbólgan var mikil að tekist hafi að ná verðbólgunni hratt niður. 

Hóflegar launahækkanir í Svíþjóð á tímum mikillar verðbólgu áttu veigamikinn þátt í því að hægt var að ná verðbólgunni hraðar niður en víða annars staðar og lækka vexti fyrr og meira, að sögn varaseðlabankastjóra Svíþjóðar. Á sama tíma hafa laun á Íslandi hækkað mun meira en þekkist á hinum Norðurlöndunum og ný rannsókn hjá varaseðlabankastjóra peningastefnu bendir til þess að áhrif launahækkana á verðbólgu hafi aukist mikið, einkum núna þegar verðbólguvæntingar eru háar.


Tengdar fréttir

Sendir röng skila­boð og hreyfir við verðbólgu­væntingum á brot­hættum stað

Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“

„Munum aldrei“ geta tekið upp evru nema koma vinnu­markaðinum fyrst í lag

Krónan er ekki orsakavaldur þeirrar þrálátu verðbólgu sem peningastefnunefnd Seðlabankans er núna að reyna ná niður með hækkun vaxta, að sögn seðlabankastjóra, heldur er fremur augljóst að miklar launahækkanir eru að birtast með skýrum hætti í verðbólgutölunum. Hann segir að vinnumarkaðslíkanið sé greinilega „brotið“ og það muni ekki lagast sjálfkrafa við mögulega inngöngu Íslands í evrópska myntbandalagið heldur þurfi að koma því í lag á undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×