Skoðun

Loftbrúin er fjár­festing í landsbyggðunum

Rögnvaldur Guðmundsson skrifar

Ég lít á Loftbrúna sem fjárfestingu í byggðajöfnuði, atvinnuþróun og samkeppnishæfni Íslands, fremur en kostnaðarlið sem rétt sé að skerða. Samgöngur þurfa að styðja við það markmið að fólk geti búið og starfað um allt land. Því tel ég ekki rétt að miða stuðning Loftbrúarinnar við fasta krónutölu.

Slík breyting gæti aukið kostnað þeirra sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu. Fyrir Vestfirðinga, Norðlendinga og Austfirðinga er flug ekki aðeins þægilegur ferðamáti heldur nauðsynleg samgönguleið. Það gerir þeim kleift að sækja vinnu, fundi og þjónustu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu. Aukinn ferðakostnaður mun draga úr þeim jöfnuði sem Loftbrúnni er ætlað að stuðla að.

Þessar hugmyndir falla ekki vel að áherslum stjórnvalda um sterkari byggðir og hvata til óstaðbundinna starfa. Til að þau markmið náist þarf fólk að eiga greiðan aðgang að samgöngum. Hærri ferðakostnaður gæti gert því erfiðara að nýta þau tækifæri sem óstaðbundin störf skapa.

Þau sem starfa frá landsbyggðinni þurfa að sækja fundi, ráðstefnur og aðra samstarfsvettvanga. Aðgengilegar samgöngur auðvelda þeim að halda tengslum við fyrirtæki, stofnanir og viðskiptavini annars staðar á landinu. Loftbrúin getur þannig stutt við fjölbreyttari atvinnutækifæri óháð búsetu.

Loftbrúin var sett á laggirnar til að jafna aðstöðu landsmanna óháð búsetu. Ég tel það markmið jafn mikilvægt nú og þegar verkefnið hófst. Því eigum við að efla Loftbrúna og varðveita þann stuðning sem hún veitir. Hún auðveldar fólki að velja sér búsetu um allt land og halda um leið tengslum við atvinnulíf, þjónustu og samfélag.

Höfundur er landsbyggðarmaður, flokksbundinn í Viðreisn og  verkefnastjóri fjármála og rekstrar.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×