Innlent

„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. vísir

Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.

Þá verður rætt við þingmann stjórnarminnihlutans sem segir landsbyggðina brjálaða vegna málsins. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hafi lofað samráði í málinu í pontu Alþingis í vor.

Gríðarlegur viðbúnaður lögreglu og herliða verður í Frakklandi og á Ítalíu vegna mótmæla sem boðuð eru á báðum stöðum. Lestarstöðvum hefur verið lokað og hafa verslunareigendur margir neglt fyrir glugga.

Þá fjöllum við um brunann í Arnarhreiðri Adolfs Hitlers, kynnum okkur dagskrá í tilefni af kvennafrídeginum og hitum upp fyrir draugagöngu í Húsdýragarðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×