Neytendur

Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Með þessum breytingum þurfa Airbnb-gestir ekki lengur að vaska upp eða fara út með ruslið.
Með þessum breytingum þurfa Airbnb-gestir ekki lengur að vaska upp eða fara út með ruslið. Getty

Gestgjafar sem setja húsnæði á leigu í gegnum Airbnb geta ekki lengur krafið gesti um að taka utan af rúminu eða vaska upp samkvæmt nýjum reglum. Breyttar reglur taka gildi í nóvember.

Breytingarnar falla undir alþjóðlega stefnu Airbnb og er þeim ætlað að takmarka húsverkin sem gestum er ætlað að sinna, svo sem að ganga frá eftir sig. Ákveðið var að ráðast í breytingarnar eftir fjölda kvartana frá gestum yfir því að þurfa að greiða þrifgjöld en samt sem áður að ljúka lista af húsverkum fyrir gestgjafann.

Uppfærðar reglur voru birtar í vikunni samkvæmt umfjöllun The Guardian og í þeim segir að gestgjöfum sé almennt ekki lengur heimilt að biðja gesti um að sinna verkum sem „krefjast verulegrar fyrirhafnar eða tíma eða yrðu að jafnaði unnin af ræstitækni“. Undir þetta fellur að taka rúmföt af rúmum, fara út með ruslið, vaska upp og ganga frá leirtaui.

Þá geta gestgjafar bætt við sjö stöðluðum reglum og „sanngjörnum“ beiðnum. Sem dæmi geta beiðnirnar verið að stytta sturtutíma vegna vatnstakmarkana eða að setja rusl í ílát sem dýr komast ekki í. Sömuleiðis má biðja um að setja notað leirtau í vaskinn.

„Reglur hjálpa gestum að skilja hvers gestgjafar ætlast til, en við höfum heyrt frá samfélagi okkar að þær geti verið ruglingslegar, íþyngjandi og erfiðar,“ sagði talsmaður Airbnb.

Frá því í apríl 2025 var gestgjöfum heimilt að fella þrifakostnaðinn inn í heildarverð dvalarinnar og þar með ekki taka þrifagjöldin sérstaklega fram. Nýju reglurnar taka gildi 20. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×