Fótbolti

„Það er þjálfarans og starfs­liðsins að meta það, ekki mitt“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bruno Fernandes var allt annað en skemmt í tapi Manchester United í Como í kvöld.
Bruno Fernandes var allt annað en skemmt í tapi Manchester United í Como í kvöld. AP/Antonio Calanni

Bruno Fernandes og félagar hans í Manchester United fengu stóran 4-1 skell á móti Como í Meistaradeildinni í kvöld og vandræðaleg frammistaða liðsins var tilefni til margra spurninga eftir leikinn. 

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við byrjum illa og þeir skoruðu mjög snemma. Lítil pressa á boltann, ekki margar góðar hreyfingar með boltann. Það var ekki margt sem gekk okkur í hag í þessum leik,“ sagði Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, í viðtali við TNT Sports eftir leikinn.

Lið Manchester United lenti undir strax á annarri mínútu leiksins.

„Að fá á sig mark snemma er slæmt og það er erfitt að komast út úr því. Við þurfum þá að reyna að vera hugrakkir, halda boltanum og láta eitthvað gerast. Ef við getum það ekki verður mjög erfitt að komast út úr þessari stöðu,“ sagði Fernandes.

„Það er ákvörðun starfsliðsins að pressa ekki maður á mann og stundum skilja eftir svæði fyrir aftan og reyna að vinna boltann, bíða eftir þeim, en stundum þegar maður gefur þessum liðum svæði fá þau sjálfstraust,“ sagði Fernandes og það var eins og hann væri að skjóta á þjálfarann.

Bruno var því spurður að því hvort hann væri að segja að Michael Carrick hefði valið ranga leikaðferð:

„Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt. Stundum þarf maður að vera hugrakkari undir pressu, taka áhættuna á að pressa hátt og gera þeim óþægilegt fyrir. Eins og þið sáuð hjá þeim í Como, þá kom miðvörðurinn til að dekka mig á mínum eigin vallarhelmingi. Við þurfum að gera það sem lið en okkur tókst það ekki,“ sagði Fernandes

„Lið sem spilar í gegnum miðjuna með stuttum tengingum, ef maður gefur því of mikinn tíma og svæði, þá getur það refsað manni á köntunum,“ sagði Fernandes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×