Sport

Fór út í bíl og náði í byssu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jordan Elliott í leik með Titans.
Jordan Elliott í leik með Titans. vísir/getty

Varnarmaður NFL-liðsins Tennessee Titans, Jordan Elliott, hefur verið rekinn frá félaginu og það ekki að ástæðulausu.

Fyrir tæpri viku síðan lenti Elliott í rifrildi á æfingu Titans sem leiddi til þess að hann rauk út í bíl að sækja byssu. Hann ætlaði svo að snúa á æfingasvæðið með hana.

Félagi hans í liðinu, John Franklin-Meyers, náði aftur á móti til hans áður en hann mætti út á völl með byssuna.

Fréttamiðlar vestra vita ekki hversu langt hann var kominn með byssuna áður en hann var stöðvaður en atvikið klárlega mjög alvarlegt. Þess vegna gat Titans ekki annað en rekið leikmanninn.

Engar kærur hafa verið gefnar út vegna málsins.

Hinn 28 ára gamli Elliott skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Titans fyrir tímabilið upp á átta milljónir dollara. Hann hafði áður leikið fyrir Cleveland Browns og San Francisco 49ers.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×