Enski boltinn

Appel­sínu­gul við­vörun og leikur United í hættu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Völlurinn í Como er blautur og aðstæður gætu versnað síðar í dag ef veðurspár ganga eftir.
Völlurinn í Como er blautur og aðstæður gætu versnað síðar í dag ef veðurspár ganga eftir. Getty

Appelsínugul veðurviðvörun hefur verið í gildi á Norður-Ítalíu sökum þrumuveðurs. Gríðarleg rigning hefur verið í kringum Como-vatn þar sem Manchester United á að mæta Como í Meistaradeild Evrópu í dag.

Leikur liðanna á að hefjast klukkan 16:45 að íslenskum tíma en gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu síðan í gær líkt og sjá má á meðfylgjandi myndbandi fréttamanns á staðnum.

Breskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hætta sé á því að leiknum verði frestað sökum aðstæðna. Þegar leikurinn á að hefjast klukkan 18:45 á staðartíma er spáð þrumum, úrhelli, töluverðum vindi og hættu á eldingum.

Rigningin hófst í gærmorgun og fátt bendir til þess að henni sloti í dag. Vera má að fresta þurfi leiknum, ekki aðeins vegna veðuraðstæðna heldur einnig áhyggja af vallaraðstæðum eftir úrhelli undanfarinn sólarhring.

Samkvæmt Simon Peach, blaðamanni á staðnum, stytti upp um hríð í morgun og búist við því að leikurinn fari fram eins og sakir standa. Staðan verði metin þegar nær dregur upphafssparki.

Leikur Como og Manchester United á að hefjast klukkan 16:45 í dag og verður sýndur beint á Sýn Sport 2, ef hann fer fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×