Innlent

Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir er ein af stofnendum NorðurHjálpar.
Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir er ein af stofnendum NorðurHjálpar.

Samtökin Norðurhjálp hafa aldrei náð að gefa jafn háar upphæðir til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda og í ár. Ein af stofnendum samtakanna segir það sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman. 

Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu milljóna króna. Að auki hefur fjöldi fólks fengið matvæli, húsgögn og fatnað frá samtökunum.

„Fólk hefur einfaldlega minna á milli handanna og það er sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman,“ segir Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir, ein stofnenda Norðurhjálpar.

Samtökin reka nytjamarkað að Óseyri 18 á Akureyri og rennur allur ágóði af sölu þar til hjálparstarfsins. 

„Í júní afhentum við bónuskort fyrir um fjórar milljónir króna, sem er hæsta mánaðarlega upphæð frá stofnun Norðurhjálpar og nú í september fyrir sambærilega upphæð,“ segir Sæunn en samtökin voru stofnuð 2023.

Allir sem taka þátt í starfi samtakanna eru í sjálfboðavinnu. Þó sé ýmis kostnaður sem fylgi slíkri starfsemi. Leigja þarf rými fyrir markaðinn og greiða hita, rafmagn og fyrir rekstur bifreiða. Sjö milljónir króna hafa farið í reksturinn það sem af er ári. 

„Við myndum auðvitað helst vilja nota hverja einustu krónu í að kaupa fleiri bónuskort og hjálpa fólki. En þetta er kostnaður sem fylgir því að halda starfseminni gangandi,“ segir Sæunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×