Innlent

Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands

Bjarki Sigurðsson skrifar
Norræna siglir að jafnaði einu sinni í viku frá Seyðisfirði og stoppar í Færeyjum og Danmörku.
Norræna siglir að jafnaði einu sinni í viku frá Seyðisfirði og stoppar í Færeyjum og Danmörku. Vísir/Jóhann K.

Til skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir þó langt í að hugmyndin verði að veruleika gangi allt eftir. 

Skoskir fjölmiðlar greina frá þessu og segja viðræður vera hafnar milli Múlaþings og hafnaryfirvalda í Aberdeen. Þá sé ónefnt fyrirtæki búið að sýna siglingunum áhuga.

Aberdeen Live ræðir við Dagmar Ýri Stefánsdóttur, sveitarstjóra Múlaþings, og segir hún viðræðurnar vera á byrjunarstigi. Hvort hugmyndin verði að veruleika stjórnist að miklu leyti af því hvort eftirspurn sé eftir fraktflutningum milli hafna. 

„Ég er bjartsýn. Við skynjum að fólk hafi áhuga og það er gott að málið sé á hreyfingu. Þetta mun þó klárlega taka nokkur ár,“ hefur miðillinn eftir Dagmar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×