Skoðun

Gott bú stendur undir sér

Róbert Ragnarsson skrifar

Fyrrverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur segist hafa skilað góðu búi. Rökin eru fyrst og fremst þau að rekstur borgarinnar sé ekki verri en víðast hvar annarsstaðar, og rekstrarerfiðleikar sem við öllum blasa, stafi fyrst og fremst af háum vöxtum. Við í Viðreisn erum ósammála því.

Hagræðingarvinnan sem ég leiði fyrir hönd borgarstjórnar snýst um að borgin geti haldið við eignum sínum, og byggt upp án þess að senda reikninginn á næstu kynslóð. Það er að skila góðu búi til borgarbúa. Þar liggur metnaður núverandi meirihluta borgarstjórnar.

Heimilisbókhaldið segir sína sögu

Gott bú er sjálfbært og byggir ekki á lántöku og sölu eigna ár eftir ár. Eins og ég hef áður bent á stendur rekstur borgarsjóðs ekki undir sér. Hann er háður sölu eigna, byggingarréttar og lóða, auk arðgreiðslna frá Orkuveitunni og öðrum dótturfyrirtækjum. Borgarsjóður stendur ekki undir viðhaldi eigna, hvað þá uppbyggingu nauðsynlegra innviða. Það finna borgarbúar á hverjum degi í skólum, á götum og í öðrum mannvirkjum.

Þetta er ekki svo flókið. Ef heimilið hefur ekki efni á að halda við bílnum eða húsinu, þrátt fyrir sölu eigna, er reksturinn augljóslega ekki í lagi. Það er búið sem við tókum við.

Vaxtakostnaður er afleiðing ákvarðana fyrri meirihluta

Framkvæmdir og viðhald á vakt fyrri meirihluta voru að stærstum hluta fjármagnaðar með lánum. Gildandi markmið gera ráð fyrir að fjárfestingar séu að 70% hluta fjármagnaðar með lántöku.

Það er eðlilegt þegar fólk kaupir sér húsnæði einu sinni á ævinni, en ekki þegar borgarsjóður fjárfestir fyrir milljarða á hverju ári, og skilar litlum sem engum rekstrarafgangi. Að óbreyttu mun vaxtakostnaðurinn hækka svo mikið að reksturinn stendur varla undir öðru en vöxtum. Þess vegna er vaxtakostnaður að sliga borgarsjóð. Vandinn er að fyrri meirihluti tók ákvarðanir sem gerir borgarsjóð viðkvæman.

Snúum þessu við

Borgarbúar kalla eftir góðu viðhaldi eigna, og nýjum íþróttamannvirkjum, leikskólum og búsetukjörnum. Til að vinna niður innviðaskuldina þarf að fjárfesta fyrir um 30 milljarða króna á ári næstu árin. Það gerist ekki nema með því að snúa rekstrartapi í afgang, breyta forgangsröðun, og draga úr lántöku.

Að mínu mati á rekstrarafgangur borgarsjóðs aldrei að vera lægri en tekjur af arðgreiðslum og sölu byggingarréttar og lóða. Það þýðir að lágmarki 5–7 milljarða króna afgangur á ári. Samhliða þarf að selja eignir sem eru ekki hluti af grunnþjónustu borgarinnar til að draga úr lántöku. Þar má t.d. nefna fasteignir sem nýtast ekki í þjónustu, og malbikunarstöð.

Svo það sé alveg skýrt, þá ætlar Viðreisn ekki selja Orkuveituna eða önnur mikilvæg innviðafyrirtæki.

Reykjavík er fyrirmynd

Reykjavík á ekki að miða sig við meðaltalið. Borgin er langfjölmennasta sveitarfélag landsins, með góðar forsendur til stærðarhagkvæmni, öflugt atvinnulíf og nær alla starfsemi hins opinbera, sem skilar góðum skatttekjum. Borgin á að setja sín eigin markmið og vera fyrirmynd annarra sveitarfélaga, ekki bara á pari við þau.

Höfundur er borgarfulltrúi Viðreisnar og leiðir hagræðingarhóp borgarstjórnar




Skoðun

Sjá meira


×