Innlent

Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hótel Kulusuk er með 34 gistiherbergi.
Hótel Kulusuk er með 34 gistiherbergi. Hotel Kulusuk

Eigandi eina hótelsins í Kulusuk á Grænlandi hefur skellt í lás og ákveðið að hafa lokað í allan vetur. Ástæðuna segir hann vera þá að enginn stuðningur fáist frá landsstjórninni eftir að Icelandair hætti flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuði.

Í frétt grænlenska fréttamiðilsins KNR segir að öllu starfsfólki Hótels Kulusuk hafi verið sagt upp. Án viðskiptavina frá Íslandi sé ekki lengur hægt að hafa starfsmenn. Þeir myndu reika um á milli tómra gistiherbergja.

„Það er það versta. Starfsfólkið verður að leita á náðir sveitarfélagsins eftir félagslegri aðstoð,“ er haft eftir Mike Nicolaisen, eiganda hótelsins, í viðtali við KNR.

Dash 8 Q400-flugvél Icelandair að renna upp að flugstöðinni í Kulusuk í september í fyrra. KMU

Á eynni Kulusuk búa um 240 manns. Flugvöllurinn þar þjónar hins vegar einnig bænum Tasiilaq, áður Angmagssalik. Þar búa um 2.000 manns og er hann langstærsta byggð austurstrandar Grænlands.

Icelandair tilkynnti í byrjun sumars að áætlunarflugi félagsins milli Keflavíkur og Kulusuk yfir vetrarmánuði yrði hætt í haust. Kulusuk yrði aðeins sumaráfangastaður frá júníbyrjun til septemberloka. Icelandair hafði áður dregið úr þjónustunni í ársbyrjun 2025 með því að hætta flugi til Kulusuk í janúar- og febrúarmánuðum.

Í frétt Vísis þann 7. október síðastliðinn var rætt við Jens-Frederik Nielsen, formann grænlensku landstjórnarinnar, um málið:

Talsmaður Icelandair, Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi, sagði í viðtali við Vísi í sumar að reynst hefði krefjandi að halda flugleiðinni úti við núverandi rekstraraðstæður, meðal annars vegna mikilla hækkana á eldsneytisverði. Icelandair þyrfti að leggja áherslu á flugleiðir og -tímabil sem hægt væri að reka á viðskiptalega sjálfbærum grunni.

Eigandi Hótels Kulusuk, Mike Nicolaisen, lýsti í sömu frétt á Vísi miklum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem missir Íslandsflugsins hefði fyrir byggðirnar á Austur-Grænlandi. Hann boðaði þá lokun hótelsins yfir vetrarmánuði en hvatti landsstjórn Grænlands til að ræða við Icelandair eða íslenska ríkið og taka sameiginlega afstöðu með austur-grænlenska samfélaginu.

Air Greenland, flugfélag landsstjórnarinnar, flýgur tvisvar í viku milli Kulusuk og Nuuk í vetur. Það dugar þó ekki til að hóteleigandinn treysti sér til að hafa opið í vetur. Hann segir að ferðalangar frá Nuuk og Tasiilaq gætu neyðst í vetur til að gista í flugstöðinni í Kulusuk.

„Það eru margir sem skilja ekki þessar afleiðingar. Jafnvel í landsstjórninni okkar eru sumir sem skilja ekki mikilvægi tengsla okkar við Ísland,“ segir Mike Nicolaisen í frétt KNR. Þar segist hann hafa leitað eftir fjárhagsstuðningi frá landsstjórninni til að geta haft opið í vetur en talað fyrir daufum eyrum.

Þess má geta að flugfélagið Norlandair á Akureyri sinnir áætlunarflugi til Scoresbysunds á austurströndinni samkvæmt samningi við grænlensk stjórnvöld.

Sjá mátti lendingu Icelandair-vélar á flugvellinum í Kulusuk í þessari sjónvarpsfrétt Sýnar í fyrrahaust:

Fjallað var um mikilvægi flugsamgangna fyrir Grænlendinga í þætti Flugþjóðarinnar á Sýn um Grænlandsflugið fyrr á árinu. Hér má sjá átta mínútna kafla úr þættinum:

Í þættinum var jafnframt fjallað um áratuga samstarf Íslendinga og Grænlendinga í flugmálum, eins og sjá má dæmi um í þessum sex mínútna kafla:


Tengdar fréttir

Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi

Íbúar í bænum Tasiilaq, stærsta bæ Austur-Grænlands, stóðu fyrir fjölmennri kröfugöngu síðastliðinn sunnudag þar sem mótmælt var einangrun og pólitísku afskiptaleysi gagnvart íbúum byggða á austurströnd landsins, þeirra sem næst eru Íslandi. Samtímis var efnt til samstöðugöngu í höfuðstaðnum Nuuk á vesturströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×