Sport

Arnar opnar sig og Inga Sæ­land fær að heyra það

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson er í mjög áhugaverðu viðtali við íþróttadeild.
Arnar Gunnlaugsson er í mjög áhugaverðu viðtali við íþróttadeild. vísir/Anton

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, settist niður með íþróttadeild í dag og opnaði sig um agabrot leikmanna íslenska landsliðsins.

Einhverjir leikmenn íslenska landsliðsins voru uppvísir að því að fá sér í glas og stunda fjárhættuspil eftir leik Íslands og Búlgaríu. Þeir ferðuðust svo til Eistlands daginn eftir og liðið gat ekkert í leiknum ytra.

Besta sætið fer aðeins yfir frammistöðu Arnars í viðtalinu en það verður birt í heild sinni í fyrramálið.

Inga Sæland íþróttamálaráðherra hefur ákveðið að atvinnumannahnefaleikar verði ekki leyfðir á Íslandi þó svo þeir séu leyfðir svo gott sem alls staðar á byggðu bóli. Besta sætið er ekki sátt við þá ákvörðun.

Meistaradeildin í vikunni var frábær og mörkunum rigndi. Rennt er yfir það helsta í þætti dagsins.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×