Skoðun

Hug­mynd skapar at­vinnu

Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar

Oft er sagt við uppfinningamanninn að hugmyndir séu lítils virði. Allir fái hugmyndir; vandinn sé að gera eitthvað úr þeim.

Það er nokkuð til í þessu. Hugmynd borgar hvorki laun né reikninga og engin vara verður til af því einu að einhver hafi fengið góða hugmynd yfir morgunkaffinu. En þegar uppfinningamaðurinn reynir að koma henni í framkvæmd gerist dálítið athyglisvert: kringum hugmyndina verður til heilt atvinnulíf.

Verkfræðingar reikna og hönnuðir teikna. Lögfræðingar gera samninga, sérfræðingar vinna að einkaleyfisumsóknum og starfsmenn einkaleyfastofa gera nýnæmiskannanir og skrá hugmyndina. Viðskiptafræðingar gera áætlanir, tæknimenn smíða frumgerðir og rannsóknastofur mæla og prófa. Komist varan lengra tekur við framleiðsla, markaðssetning, dreifing og sala.

Flestir sem koma að þessu ferli fá greitt fyrir vinnu sína jafnóðum.

Uppfinningamaðurinn sjálfur þarf stundum að bíða árum saman.

Atvinna sem vex af hugmyndinni.

OECD bendir á að ung fyrirtæki séu að meðaltali með um 20% atvinnunnar í OECD-ríkjum en skapi nær helming nýrra starfa. Stofnunin telur sprota- og vaxtarfyrirtæki mikilvæga drifkrafta nýsköpunar, atvinnusköpunar og endurnýjunar atvinnulífsins.

Þarna ætti því að vera sameiginlegt hagsmunamál samfélagsins að hugmynd komist yfir fyrstu hindranirnar. Hún kann að skapa starf uppfinningamannsins, en ef vel tekst til verða störfin miklu fleiri og dreifast víða.

Þolinmótt fjármagn.

Erfiðasta spurningin kemur snemma: Hver ætlar að fjármagna tímann?

Nýjung getur þurft mörg ár í þróun og til sannprófunar áður en ljóst verður hvort hún stendur undir sér. Á meðan þarf að greiða öllum þeim sem koma að verkinu laun. Tekjurnar eru litlar eða engar og áhættan mikil.

Þetta bil milli hugmyndar og markaðar er svo vel þekkt að það hefur lengi verið kallað dauðadalurinn. Þar geta efnileg verkefni dáið, þótt tæknin sé góð, vegna þess að rannsóknarféð er uppurið en verkefnið ekki orðið nógu öruggt fyrir hefðbundna fjárfesta.

Evrópska nýsköpunarráðið hefur brugðist við þessum vanda með fjárfestingarsjóði sem talar beinlínis um þolinmótt fjármagn (patient capital) Fjárfestingartíminn er almennt sjö til tíu ár og getur farið upp í fimmtán ár. Sjóðurinn er meðal annars ætlaður fyrirtækjum sem eru að fara frá frumgerð yfir í markaðssetningu og uppbyggingu á framleiðslu.

Það er merkileg viðurkenning á staðreynd sem uppfinningamenn þekkja vel: Góð hugmynd fylgir sjaldnast starfsáætlun sjóðanna.

Króna á móti krónu stuðningur, virkar það í litlu samfélagi?

Á Íslandi er til öflugt opinbert stuðningskerfi og því ber að halda til haga. Tækniþróunarsjóður styður verkefni á ýmsum stigum og Sproti krefst nú til dæmis ekki mótframlags.

Þegar lengra kemur breytist myndin. Einkaleyfastyrkur og Markaðsstyrkur gera ráð fyrir 50% mótframlagi, en hjá Vexti ræðst mótframlag af reglum ESA um opinberan stuðning.

Slíkar reglur eiga sér eðlilegar skýringar. Hið opinbera á ekki að bera alla áhættuna og mótframlag getur sýnt að fleiri hafi trú á verkefninu.

Samt stendur eftir einföld spurning, sérstaklega í 400 þúsund manna samfélagi:

Hvaðan á hinn helmingurinn að koma?

Bankinn sér litlar tryggingar. Fjárfestir vill sjá markað og helst tekjur. Uppfinningamaðurinn hefur kannski lagt sparifé sitt í verkefnið og unnið árum saman fyrir lítið eða ekkert endurgjald. Hugverkið sjálft getur verið verðmætt, en það er sjaldan sú trygging sem bankastjóri setur glaður í veðskjal.

Þarna getur góð regla á blaði orðið að mjög háum þröskuldi í raunveruleikanum.

Þegar stuðningur hættir, hvað þá?

Svipað á við um tímann. Sprotastyrkurinn getur nú staðið í tvö ár, Vöxtur í tvö ár og Markaðsstyrkur í eitt ár.

Enginn sanngjarn maður ætlast til þess að ríkissjóður fjármagni verkefni endalaust. Það þarf að meta árangur, stöðva það sem gengur ekki og gæta almannafjár.

En hvað á að gera við verkefni sem gengur vel, stenst faglegt mat og nær sínum áföngum, en þarf einfaldlega lengri tíma?

Ef tæknin þarf sex eða átta ár til sannprófunar verður hún ekki verri fyrir þá sök að styrkjakerfið vinnur í tveggja ára lotum. Raunar virðist Evrópska nýsköpunarráðið hafa komist að þeirri niðurstöðu að einmitt þarna þurfi hið opinbera stundum að hafa lengra úthald en hinn hefðbundni fjárfestir.

Kannski ættum við að hugsa meira á þann hátt hér á landi.

Hver skrifar reglurnar?

Opinbert stuðningskerfi þarf reglur. Vandinn byrjar þegar ferlið sjálft verður mikilvægara en það sem átti að styðja.

Uppfinningin veit ekkert um umsóknarfresti. Prófun mistekst og þarf að endurtaka hana. Framleiðandi sem lofaði frumgerð dregur sig út. Einkaleyfaferli tekur lengri tíma en gert var ráð fyrir og stundum leiða mistök til lausnar sem enginn sá fyrir.

Svona hefur nýsköpun alltaf verið.

Þess vegna mætti ein spurning heyrast oftar þegar reglur um nýsköpun eru samdar:

Hversu margir þeirra sem hanna kerfið hafa sjálfir reynt að taka hugmynd, fjármagna hana, verja hana, smíða, prófa og koma henni á markað?

Samfélagið hefur mikinn hag af því að einhver leggi af stað með nýja hugmynd. Á leiðinni skapast vinna fyrir fjölda fólks og ríkið fær sitt í sköttum og gjöldum löngu áður en uppfinningamaðurinn veit hvort hann fær nokkurn tíma sína fyrirhöfn greidda.

Það væri því ekki fráleitt að spyrja hvort við ættum að leggja færri steina á þá leið og hafa aðeins meiri þolinmæði með þeim sem reyna að leggja af stað.

Höfundur er forstjóri Elás ehf.

Heimildir:

https://island.is/v/taeknithrounarsjodur/yfirlit-styrkjaflokka?

https://publications.jrc.ec.europa.eu/repository/bitstream/JRC112708/jrc112708_online.pdf

https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/

https://eic.ec.europa.eu/eic-fund/eic-fund-investment-guidelines-approach_en

https://www.oecd.org/en/about/projects/measuring-job-creation-by-start-ups-and-young-firms.html

https://www.euipo.europa.eu/de/news/ip-driven-industries-contribute-nearly-half-of-eu-gdp-and-create-one-in-three-jobs

https://www.euipo.europa.eu/nl/publications/firm-level-analysis-report-january-2025

https://www.euipo.europa.eu/en/publications/IP-backed-finance-in-Europe-state-of-play-and-future-perspectives




Skoðun

Sjá meira


×