Lífið

Ugla yfir­gefur borgina

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Árni hefur sett íbúðina á sölu.
Árni hefur sett íbúðina á sölu.

Árni Árnason, mannauðsstjóri hjá Elju, sem slegið hefur í gegn á Facebook með alls kyns grínmyndböndum, hefur sett íbúðina sína á sölu. Hann hyggst yfirgefa borgina.

„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færslu á Facebook.

Um er að ræða tæplega 65 fermetra íbúð við Bláhamra í Grafarvogi. Þar má finna rúmgóða stofu og borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi, svalir og fallegt útsýni. 

Sjá nánar hér á fasteignavef Vísis.

Árni hefur hlotið töluverða athygli fyrir myndskeið sem hann birtir á Facebook þar sem hann bregður sér í hlutverk Uglu Trés. Hann gerir þar ítrekað grín að nýliðnum atburðum.

„Fólk kannski nennir ekki að lesa eitthvað tuð og þarna fann ég leið til þess að koma sannleikskornum á framfæri með grínívafi og smá vitleysisgangi og þá nennir fólk að hlusta,“ segir Árni léttur í bragði í viðtali í Bítinu á Bylgjunni árið 2025.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.