Skoðun

Til hamingju... með hvað?

Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Við Íslendingar höfum svo sannarlega fengið að kynnast frasa- og umbúðapólitík undanfarin ár.

Stjórnmálamenn keppast við að setja aðgerðir sínar og ástand raunveruleikans í fallegar umbúðir en þegar betur er að gáð kemur í ljós að innihaldið er lítið sem ekkert. Við erum í raun farin að kjósa yfir okkur samskiptafulltrúa sem telja hlutverk sitt vera að búa til glansmyndir framar því að framkvæma í þágu íbúa.

Því miður er þessi pólitík að opinberast í Kópavogsbæ og er nýjasta dæmið fréttatilkynning bæjarins um PISA-niðurstöður grunnskólanna undir fyrirsögninni: „Kópavogur meðal fremstu sveitarfélaga landsins í PISA 2025“.

Í tilkynningunni er vitnað í bæjarstjóra sem segir niðurstöðurnar endurspegla öflugt starf og fagmennsku starfsfólks. Í framhaldinu kepptust fulltrúar Sjálfstæðisflokksins við að deila fréttinni og fagna árangrinum. Ég verð þó að draga í efa að þessir sömu fulltrúar hafi gefið sér tíma til að lesa niðurstöðurnar.

Hefðu þeir lesið PISA-skýrsluna hefðu þeir séð að 41% nemenda í Kópavogi ná ekki grunnhæfni í lesskilningi. Hlutfallið er 34% í náttúruvísindum og 32% í stærðfræði.

Á sama tíma teljast aðeins 2% nemenda afburðanemendur í lesskilningi, 2% í náttúruvísindum og 5% í stærðfræði. Við erum því ekki aðeins að bregðast þeim nemendum sem dragast aftur úr, heldur einnig þeim sem hafa burði til að skara fram úr.

Er það í alvöru fagnaðarefni að þriðjungur nemenda nái ekki grunnhæfni í stærðfræði og náttúruvísindum? Að það styttist í að helmingur nemenda nái ekki grunnhæfni í lesskilningi?

Sjálfstæðisflokkurinn virðist telja svo vera svo lengi sem Kópavogur mælist yfir landsmeðaltalinu á Íslandi. Landsmeðaltali sem hefur hrakað verulega undanfarinn áratug.

Það er ekki eins og það vanti tillögur að úrbótum. OECD hefur bent á mikilvægi samræmdra mælinga á námsárangri, aukinnar áherslu á grunnfög, bætts stuðnings við nemendur og endurskoðunar kennsluhátta.

Miðflokkurinn í Kópavogi hefur þegar kallað eftir endurskoðun á framkvæmd skóla án aðgreiningar, samræmdum prófum og minni notkun snjalltækja í skólastarfi, við litlar undirtektir.

Því miður virðast varðhundar núverandi skólakerfis hafa meiri áhuga á að verja fyrirkomulagið en að horfast í augu við raunveruleikann. Það er löngu tímabært að við hættum að láta þá sem hafa hæst ráða ferðinni. Þeir hafa fengið sínu framgengt og sjáið bara afraksturinn.

Við rekum eitt dýrasta menntakerfi heims og því verður ekki endalaust hægt að halda því fram að lausnin felist einfaldlega í auknu fjármagni. Það þarf að þora að endurskoða framkvæmdina, mæla árangurinn og setja menntun barnanna okkar í fyrsta sæti.

Í stað þess að óska sjálfum sér til hamingju ætti meirihlutinn í Kópavogi að taka niðurstöðurnar alvarlega og hefjast handa við nauðsynlegar úrbætur.

En kannski er þetta einhvers konar satíra af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Þessar PISA-niðurstöður eru vissulega sögulegar fyrir Kópavog, árangurinn hefur aldrei verið verri.

„Til hamingju.“

Höfundur er bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×