Skoðun

Ekkert leyni­letur heldur ís­lenskt rit­mál – Punkta­letur á að vera sjálf­sagður hlutur

Hjalti Sigurðsson skrifar

Fimmtudaginn 15. október er hinn árlegi Dagur hvíta stafsins. Í ár verður sviðsljósinu beint að punktaletrinu, sem er mikilvægur hluti af menningarheimi og sjálfstæði þeirra sem sjá lítið eða ekkert.

Að því tilefni efnir punktaletursnefnd til málþings um stöðu og framtíð punktaleturs kl. 16.00–18.00 á 2. hæð í Húsi Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17. Allir velunnarar og áhugafólk eru velkomin.

Af hverju punktaletur?

Umræður um punktaletur rata oftar en ekki í þær blindgötur að snúast um staðalímyndir og mýtur, sem verður til þess að samtalið nær oftast ekki að fjalla af einhverju viti um hlutverk og stöðu punktaleturs eða mikilvægi þess að hlúa að því og nýta tækifærin sem það hefur upp á að bjóða.

Almennt er punktaletur sett í dýrðarljóma og litið á það sem hrífandi leyniletur sem lesið er af einstaklingum með einstaka skynhæfileika. Þetta speglast í viðhorfum margra sem gætu nýtt sér punktaletrið en ákveða að það sé óyfirstíganlegur þröskuldur að tileinka sér að lesa með fingrunum. Sérstaklega þrálát er sú mýta að fullorðnir einstaklingar eigi erfiðara með að æfa næmi til lesturs í fingurgómum. Þetta, ásamt rökum um að punktaletur sé óþarft nú þegar talgervlar og önnur nútímatækni gera kleift að afla upplýsinga hljóðrænt, verður oft til þess að útiloka punktaletur sem kost í lífi þeirra sem gætu nýtt sér það í leik og starfi.

Hugarfarið ber okkur hálfa leið

Mögulega hefur þetta ásamt öðru skapað þau hughrif að til að teljast punktaletursnotandi verðir þú að vera komin/n með hæfni til að lesa langan texta, helst með ágætum hraða, og velja punktaletrið fram yfur önnur form á miðlun upplýsinga, svo sem skjástækkun og talgervla. Hér getum við tekið fyrsta skrefið til breytinga og farið að tala um notendur punktaleturs sem alla þá sem nýta það í einhverju formi — þótt það sé bundið við að velja hnappa í lyftum eða merkja snyrtivörur, krydd og annað á heimilinu. Ef þú notar punktaletur á þann hátt sem þér hentar ertu ein/n af okkur. Ef þú vilt tileinka þér það enn frekar ættir þú að fá allan þann stuðning til þess sem þú þarft, en ef þetta nægir þér er heldur engin pressa.

Næsta skref er að taka punktaletrið niður af hinum háa stalli og dreifa þeim boðskap, sem á stoð í mörgum rannsóknum, að allir geta þjálfað upp næmi til að lesa punktaletur, óháð aldri eða fyrri reynslu. Við ættum að stefna að því að skapa viðhorf og umræðu um að punktaletur sé sjálfsagður hluti af lífi blindra og sjónskertra og að hægt sé að fá tækifæri til að tileinka sér það í þeim mæli sem hentar hverjum og einum. Markmiðið þarf ekki að vera að lesa heilu bækurnar, heldur getur það verið tæki til að auka aðgengi einstaklinga í daglegu lífi eða komið sem viðbót við stækkun og skjálestur stafrænna lausna. Að geta notað punktaletur meðfram öðru gerir okkur færari í ritun, uppsetningu á texta og skjölum og eykur möguleika til læsis.

Sækjum fram í krafti tækninnar

Núna er tækifærið til að leggja aukna áherslu á punktaletur og skapa því þann sess sem það á skilið sem opinbert ritmál á Íslandi, eins og mælt er fyrir um í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í dag fleygir tækninni fram sem styður punktaletur; prentarar, skjáir og merkitæki, svo fátt eitt sé nefnt, eru orðin aðgengilegri, minni í sniðum og ódýrari í framleiðslu, sem allt styður aukið notkunarsvið fyrir punktaletrið.

Orðræðan skiptir máli. Tölum upp punktaletrið – ekki sem eitthvað sérstakt og framandi, heldur sem sjálfsagðan hluta af sjálfstæðu og virku lífi blindra og sjónskertra.

Höfundur er formaður punktaletursnefndar á vegum Sjónstöðvarinnar og Blindrafélagsins.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×