Viðskipti innlent

Taka um­deilda samninga til skoðunar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru.
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru. Vísir/Vilhelm

Ölgerðin hyggst taka styrktarsamninga við nemendafélög í háskólum til skoðunar eftir umfjöllun Kveiks í kvöld um viðskiptahætti félagsins.

Seint í kvöld sendi Ölgerðin frá sér yfirlýsingu sem Jón Þorsteinn Oddleifsson forstjóri Beru ritar undir.

Útiloki vörur samkeppnisaðila af markaði

Í yfirlýsingunni segir hann að viðskiptahættir líkt og þeir sem lýst var í fréttaskýringarþættinum Kveik og í umfjöllun fjölmiðla undanfarið hafi lengi tíðkast á markaðnum. Samkeppniseftirlitið fór fyrir helgi í húsleit hjá Beru móðurfélagi Ölgerðarinnar vegna rannsóknar á meintum brotum á samkeppnislögum.

Í Kveik í kvöld var rætt við samkeppnisaðila Ölgerðarinnar sem telja félagið hafa markaðsráðandi stöðu á drykkjavörumarkaði og sýni einokunartilburði.

Ölgerðin hafi gert samninga við bari og skemmtistaði til að koma í veg fyrir sölu á vörum keppinauta og sömuleiðis við nemendafélög háskóla sem skuldbinda sig þá til að versla aðeins við Ölgerðina.

Auknar skyldur

Í yfirlýsingunni bendir Jón Þorsteinn á að umsvif Ölgerðarinnar hafi aukist mikið undanfarið ár. Félagið sé nú stærsti aðilinn í einhverjum drykkjavöruflokkum og það sé breyting frá því sem áður var.

Teljist félagið markaðsráðandi leggi samkeppnislög á það auknar skyldur umfram aðra aðila á markaði. Ölgerðin muni vinna áfram með Samkeppniseftirlitinu að því að upplýsa þau atriði sem eftirlitið hefur til skoðunar og fjallað var um í þættinum.

„Félagið telur sig starfa á mjög virkum samkeppnismarkaði og virkt eftirlit samkeppnisyfirvalda er mikilvægur þáttur í að stuðla að heilbrigðri samkeppni. Komi í ljós að eitthvað í framgöngu Ölgerðarinnar á markaðnum standist ekki skoðun þá munum við taka það til endurskoðunar,“ segir í yfirlýsingunni.

Í fréttaskýringarþættinum Kveik í kvöld var fjallað um stöðuna á drykkjarvörumarkaði hér á landi.

Líkt og kom fram í þættinum þá hafa umsvif Ölgerðarinnar aukist mikið á síðustu árum. Félagið keppir í flestöllum drykkjarvöruflokkum og er stærsti aðilinn í einhverjum þeirra. Þetta er breyting frá því sem áður var líkt og kom fram í þættinum og teljist félagið markaðsráðandi þá leggja samkeppnislög auknar skyldur á það umfram aðra á markaði.

Í þættinum var fjallað um viðskiptahætti sem hafa viðgengist lengi á markaðnum í tengslum við styrktarsamninga við nemendafélög í háskóla. Ölgerðin mun taka þessa samninga til skoðunar.

Ölgerðin mun vinna áfram með Samkeppniseftirlitinu að því að upplýsa þau atriði sem eftirlitið er með til skoðunar og fjallað var um í þættinum. Félagið telur sig starfa á mjög virkum samkeppnismarkaði og virkt eftirlit samkeppnisyfirvalda er mikilvægur þáttur í að stuðla að heilbrigðri samkeppni.

Komi í ljós að eitthvað í framgöngu Ölgerðarinnar á markaðnum standist ekki skoðun þá munum við taka það til endurskoðunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×