Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar 14. október 2026 07:31 Fyrir rúmum 15 árum ritaði sænski sagnfræðingurinn og rithöfundurinn Gunnar Wetterberg bók sína um Norræna sambandsríkið. Hann sá fyrir sér að fyrir 2030 myndu Norðurlöndin öll sameinast í eitt ríki, með sameiginlega stjórnarskrá, þing og ríkisstjórn, sameiginlega utanríkis- og öryggisstefnu og samræmda efnahagsstjórn. Ríkin héldu þó víðtækri sjálfsstjórn en færu sameiginlega með þau verkefni þar sem stærð, styrkur og samstaða skipta mestu máli. Hugmyndir Gunnars fengu ekki mikinn hljómgrunn hjá stjónrmálafólki þegar þær komu fram, en þær hleyptu miklu lífi í umræðuna um framtíð norræns samstarfs og hafa lifað góðu lífi í grasrótinni og með margvíslegum hætti, mótað hugmyndir og framtíðarsýn okkar sem viljum efla og styrkja norrænt samstarf. Gjörbreytt heimsmynd, þróun alþjóðamála og ekki síst norræns samstarfs síðustu áratugi kallar á hreinsklina umræðu um hvað við viljum í raun með norrænu samstarfi. Viljum við áframhaldandi hnignum og útvötnun eða treystum við okkur til að taka næsta skref – efla og styrkja norrænt samstarf og feta veginn að norrænu sambandsríki? Næstkomandi föstudag standa Norræna félagið og Norræna húsið fyrir opnum fundi með Gunnari Wetterberg þar sem við munum ræða þessi mál. Er hugmyndin um Norrænt sambandsríki draumsýn eða raunverulegt leiðarljós norræns samstarfs? Heimurinn hefur breyst Árið 2010 voru Finnland og Svíþjóð utan NATO. Stríð í Evrópu virtist flestum fjarlægur möguleiki. Stórveldasamkeppni um norðurslóðir, orku, hráefni og mikilvæga innviði var af allt öðrum toga en nú. Netárásir, fjölþáttaógnir og skemmdarverk á sæstrengjum voru ekki daglegt umræðuefni stjórnmálanna. Nú geisar stríð í Evrópu. Öll norrænu ríkin eru í NATO. Öryggi norðurslóða og Norður-Atlantshafs hefur stóraukið vægi og norrænt varnarsamstarf hefur tekið stakkaskiptum. En kannski er skýrasta dæmið um breytta heimsmynd óvæntar ögranir Bandaríkjanna gagnvart Grænlandi og Danmörku og í raun, Evrópu allri. Að norrænt land skuli þurfa að verjast tilraunum eins nánasta bandamanns okkar síðustu áratugi, til að ná yfirráðum yfir landsvæði þess hefði fyrir fáeinum árum þótt nánast óhugsandi. Þróunin hefur sýnt með áþreifanlegum hætti hversu berskjölduð norræn samfélög geta verið gagnvart hagsmunum stórvelda og hversu mikilvægt er að eiga öfluga bakhjarla. COVID-faraldurinn afhjúpaði aðra veikleika. Þegar Danir takmörkuðu för yfir landamærin við Svíþjóð í mars 2020 varð Eyrarsundsbrúin, eitt helsta tákn norrænnar samþættingar, skyndilega að landamærahindrun á ný. Fólk sem hafði um árabil búið öðrum megin sundsins og starfað hinum megin stóð frammi fyrir takmörkunum og óvissu. Norrænt samstarf reyndist brothætt þegar hvert ríki tók ákvarðanir fyrst og fremst út frá eigin forsendum. Um leið hefur öryggishugtakið breikkað. Farsóttir, loftslagsvá, netárásir, skipulögð glæpastarfsemi, flóttamannastraumar og rof á orku-, fjarskipta- og aðfangakerfum virða ekki landamæri. Wetterberg taldi þegar árið 2010 að einmitt í utanríkis- og öryggismálum myndi Norrænt sambandsríki skipta einna mestu máli. Smáríki geta haft áhrif, en smæðin setur þeim mörk. Ef maður fær ekki sæti við borðið þar sem stóru ákvarðanirnar eru teknar dugar skynsemin ein skammt. Sambandsríkið, skrifaði hann, myndi „opna fleiri dyr“. Þessi rök eru enn sterkari árið 2026 en þau voru árið 2010. Samþættasta svæði heims? Árið 2019 settu forsætisráðherrar Norðurlandanna sér það markmið að Norðurlönd skyldu verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Það eru aðeins fjögur ár þangað til og því miður hefur okkur lítið miðað að markinu síðustu ár. Við höfum þegar sameiginlegan vinnumarkað og Norðurlandabúar flytja milli landanna, vinna þar, stunda nám og stofna fyrirtæki og fjölskyldur. Varnir okkar samþættast hratt og við vinnum saman á æ fleiri sviðum. En öll þessi kerfi hökta og svokallaðar ”landamærahindranir” eru sífellt að þvælast meira fyrir okkur innann norrænu landanna. Ég hef sjálfur lengi talað fyrir því að nauðsynlegt næsta skref til að yfirvinna hindranirnar á milli norrænu landann og stórauka samkend þeirra væri sameiginlegur norrænn ríkisborgararéttur. Hugsunin er sú að réttindi okkar og skyldur sem ríkisborgarar í einhverju norrænu landi verði nákvæmlega þær sömu, hvar sem við kjósum að búa á Norðurlöndunum. Sú var sannarlega hugsununin með sameiginlegum vinnumarkaði og ýmsum ákvæðum Helsingforssamningsins, þó framkvæmdin sé því miður önnur. Ef við meinum í alvöru að markmiðið sé að verða samþættasta svæði heims árið 2030, verðum við líka að þora að ræða hvað samþætting þýðir – og hvert hún getur leitt. Mikill stuðningur – minnkandi fjármunir Almenningur á Norðurlöndum styður norrænt samstarf mjög eindregið. Í könnun Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs árið 2021 töldu 86% öflugt norrænt samstarf mikilvægt eða mjög mikilvægt og 60% vildu meira samstarf. Aðeins 1% vildi minna samstarf. Þessi afstaða er ekki ný. Þegar hugmynd Gunnar Wetterbergs um sambandsríkið var könnuð árið 2010 voru 42% Norðurlandabúa jákvæð eða mjög jákvæð gagnvart henni, þrátt fyrir algera andstöðu stjórnmálanna. Stuðningurinn var mestur á Íslandi og í Svíþjóð. Þrátt fyrir eindreginn stuðning almennings við norrænt samstarf hafa stjórnvöld markvisst dregið úr fjármagni til samstarfsins og mikilvægi þess minnkar ár frá ári. Ef fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, sem hlutfall af samanlagðri landsframleiðslu Norðurlandanna er sett á vísitöluna 100 árið 1995 var hún komin niður í 47 árið 2024. Framlag ríkjanna til norræns samstarfs er því minna en helmingur (47%) af því sem það var fyrir um 30 árum síðan. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Og þetta eru ekki háar fjárhæðir sem um er að tefla. Í dag samsvarar fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar aðeins um 750 íslenskum krónum á hvern íbúa norrænu landanna á ári. Það er ekki mikið fyrir samstarf ríkja sem segjast ætla að skapa samþættasta svæði heims og það fyrir árið 2030! Lítil þjóð þarf skjól Fyrir okkur Íslendinga er hugmyndin um norrænt sambandsríki etv enn brýnni nú en áður. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst höfnuðu Íslendingar því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ísland er auðvitað áfram nátengt Evrópu í gegnum EES og Schengen. En full aðild að ESB og það pólitíska og stofnanalega skjól sem aðild fylgir er ekki á dagskrá um fyrirsjáanlega framtíð. Hið sama á raunar við um Noreg, Færeyjar og Grænland líka sem öll hafa kosið að standa utan ESB. Þá er því eðlilegt að spyrja: Hvar á lítil þjóð að finna skjól í heimi þar sem vald stórveldanna vex og alþjóðareglur eiga undir högg að sækja? Atburðirnir í kringum Grænland sýna að þetta er ekki lengur aðeins fræðileg spurning og mögulega liggur svarið í Norrænu sambandsríki. Sambandsríki þarf ekki að verða til á einum degi Orðið sambandsríki kallar auðveldlega fram mynd af einu ríki, einum þjóðhöfðingja, einni ríkisstjórn og einu þingi. En þar liggur ekki endilega kjarni hugmyndarinnar að mínu viti. Mikilvægari spurning er hvort Norrænu ríkin séu tilbúin að færa afmarkað ríkisvald til sameiginlegra norrænna stofnana á þeim sviðum þar sem sameiginlegar lausnir eru sterkari en innlendar. Það gæti til dæmis verið á sviði öryggis og viðbúnaðar, fjármálastöðugleika og gjaldmiðils, ákveðinna utanríkis- eða loftslagsmála eða norræns ríkisborgararéttar. Um leið og sameiginleg norræn stofnun fær vald til að taka bindandi ákvarðanir hefur orðið eðlisbreyting á samstarfinu. Við erum þá ekki lengur aðeins að vinna saman. Við erum farin að fara saman með vald. Þar er kominn vísir að norrænu sambandsríki. Evrópusamruninn þróaðist með sambærilegum hætti. Hann hófst ekki með Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag heldur með afmörkuðu samstarfi sex ríkja um kol og stál. Ríkin færðu sameiginlegri stofnun raunverulegar heimildir á þröngu sviði. Síðan fylgdu fleiri skref. Við þurfum hvorki að afrita Evrópusambandið né stefna að sömu niðurstöðu. En sagan sýnir að stórar stjórnskipulegar breytingar þurfa ekki að verða í einu stökki. Það er líka vert að hafa það í huga að hugmyndirnar um Sambandsríki Evrópu og Sambandsríki Norðurlandanna voru báðar til umræðu á fyrri hluta 20 aldar. Báðar þóttu þær jafn fráleitar á þeim tíma. Ný norræn stjórnarskrá Allt skiptir þetta sérstaklega miklu máli nú, þegar Helsingforssamningurinn – stjórnarskrá norræns samstarfs – er til formlegrar endurskoðunnar. Fyrirliggjandi tillögur gera ráð fyrir fjölgun málaflokka og margvíslegri nútímavæðingu samstarfsins, en betur má ef duga skal. Norrænu félögin hafa lengi kallað eftir því að gengið verði lengra en núverandi rammi gerir ráð fyrir og mótuð verði ný norræn stjórnarskrá. Á sama tíma krefjast Grænland, Færeyjar og Áland réttilega sterkari og sjálfstæðari stöðu í norrænu samstarfi. Við eigum móta nýja norræna stjórnarskrá um samstarf og samfélag átta norrænna landa, þar sem staða hinna smærri er tryggð. En mikilvægasta breytingin væri að mínu mati sú að ný stjórnskipuleg umgjörð gerði Norðurlöndunum kleift, þegar lýðræðislegur vilji stendur til þess, að færa sameiginlegum norrænum stofnunum raunverulegt ríkisvald. Þar liggur eðlisbreytingin, skrefið að sambandsríki Norðurlandanna. Næstu hundrað ár Norrænu félögin hafa í meira en heila öld barist fyrir nánari tengslum Norðurlandanna. Þegar sú barátta hófst var ekkert sjálfsagt við hugmyndina um nána norræna samvinnu. Þvert á móti. Saga þessara þjóða var um aldir saga átaka, stríða og valdabaráttu og hugmyndin um að þær gætu myndað sérstakt samfélag friðar, trausts og samvinnu var fráleit draumsýn í hugum margra. En draumsýnin varð smám saman að veruleika. Við fengum Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina, sameiginlegan vinnumarkað, vegabréfafrelsi og réttindi yfir landamæri. Fólk flutti milli landanna, lærði hvert hjá öðru, stofnaði fjölskyldur og fyrirtæki þvert á landamæri og kynslóð eftir kynslóð ólst upp við að líta á nágrannaþjóðirnar ekki sem keppinauta eða óvini heldur sem sína nánustu vini. Norðurlöndin eru í þeim skilningi orðin eins og ein stór fjölskylda. En samstarf, vinátta eða sameiginleg verkefni lifa ekki endalaust á fyrri árangri eða reynslu. Það sem var framsækið og uppbyggjandi fyrir sjötíu árum er ekki endilega gott fyrir næstu sjötíu – hvað þá næstu hundrað. Samráð eða sambandsríki? Heimurinn í kringum okkur hefur gjörbreyst. Fjármunir norræns samstarfs hafa rýrnað hlutfallslega og verkefnin sem við stöndum frammi fyrir verða sífellt síður leyst innan landamæra hvers ríkis. Á sama tíma er Helsingforssamningurinn í endurskoðun, stuðningur almennings við norrænt samstarf er mikill og við höfum sjálf sett okkur það markmið að verða samþættasta svæði heims. Að mínu viti er ákvörðunin um eðlisbreytingu norræns samstarfs frá samráði fullvalda ríkja yfir í mótun sameiginlegs norræns ríkisvalds á tilteknum sviðum orðin knýjandi. Ekki aðeins ef það á að lifa af, heldur vaxa og dafna næstu fimmtíu eða hundrað árin. Kannski verður niðurstaðan aldrei norrænt sambandsríki í þeirri mynd sem Gunnar Wetterberg teiknaði upp árið 2010. Og líklega byrjar norrænt sambandsríki heldur ekki með fána, forseta, ríkisstjórn og nýju þinghúsi. Mögulega verður fyrsta skrefið að norrænu sambandsríki tekið þegar Norðurlöndin ákveða í fyrsta sinn að á tilteknu sviði sé ekki lengur nóg að vinna saman, heldur þurfi þau að fara saman með vald og með þeim hætti tryggja hagsmuni íbúa landanna sem best. Það skref er löngu tímabært. Þetta er umræða sem við verðum að taka og það er afar ánægjulegt og viðeigandi að fá tækifæri til að hefja það samtal með manninum sem setti hugmyndina um Norræna sambandsríkið rækilega á dagskrá. Velkomin á fund Norræna félagsins með Gunnari Wetterberg föstudaginn 16. október kl. 13 í Norræna húsinu. Höfundur er formaður Norræna félagsins á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrannar Björn Arnarsson Mest lesið Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic Skoðun Skoðun Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar