Væntingar um að samruni Gildis og Festu skili yfir milljarði í árlegri samlegð
Með sameiningu lífeyrissjóðanna Gildis og Festu er áætlað að það geti skilað árlegri samlegð upp á samtals vel yfir einn milljarð, einkum vegna lægri rekstrarkostnaðar og hagstæðari kjara við erlenda eignastýringu. Ekki er gert ráð fyrir fækkun starfsfólks vegna samrunans en mögulega þarf að skerða áunnin lífeyrisréttindi sjóðfélaga þess sjóðs sem stendur lakar tryggingafræðilega til að jafna stöðu þeirra fyrir sameiningu.
Tengdar fréttir
Sameinaður lífeyrissjóður fer yfir tuttugu prósenta hlut í aðeins einu félagi
Þótt lífeyrissjóðirnir Gildi og Festa, sem hafa samþykkt að sameinast síðar á árinu, muni að óbreyttu fara með vel yfir fimmtungshlut í Reitum þá ættu þeir ekki að þurfa selja sig niður fyrir þau mörk með hraði eftir nýlegar lagabreytingar. Í júlí og ágúst stóð Gildi að umfangsmikilli sölu á bréfum í nokkrum Kauphallarfélögum fyrir samtals vel yfir tíu milljarða.
Samruni stórra lífeyrissjóða kallar á spurningar um samþjöppun eignarhalds
Áform um mögulegan samruna Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Birtu, tveir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, ætti að leiða til þess að velt sé upp sjónarmiðum hvaða áhrif það kynni að hafa fyrir samþjöppun eignarhalds á markaði, að sögn seðlabankastjóra.
Alls staðar verið að minnka áhættusækni og dirfsku hjá stjórnendum félaga
Einn stærsti einkafjárfestirinn í Sjóvá sagði afstöðu Gildis gegn tillögu að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur félagsins, sem tekist var á um á nýlegum aðalfundi, vera „óskiljanlega“ og gagnrýndi að alls staðar sé verið að „minnka áhættusækni og dirfsku og draga tennurnar úr“ þegar reynt er að umbuna stjórnendum. Að sögn framkvæmdastjóra Gildis snýr gagnrýninn að skorti á skýrleika en sjóðurinn var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði á móti kaupréttaráætluninni eftir breytingartillögu sem barst frá LSR.
Gildi selur í stóru bönkunum fyrir marga milljarða á skömmum tíma
Lífeyrissjóðurinn Gildi, einn allra stærsti hluthafinn í Arion og Íslandsbanka, hefur staðið að umfangsmikilli sölu í bönkunum í þessum mánuði fyrir samanlagt í kringum þrjá milljarða að markaðsvirði.