Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ Árni Gísli Magnússon skrifar 10. október 2026 18:13 Aleksandar Linta er ekki sáttur eftir að ÍBV féll eftir leik dagsins. Diego/Vísir ÍBV er fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór fyrir norðan í dag þegar tvær umferðir eru enn eftir.
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, fór yfir víðan völl í viðtali eftir leik. „Auðvitað er ég ekki ánægður. Ég er ekki ánægður fyrir hönd félagsins, ég er ekki ánægður vegna strákanna. Enginn bjóst við þessu, jú þetta var erfitt sumar þar sem við glímdum við mörg vandamál sérstaklega í að ná í úrslit en við reyndum alltaf að vera jákvæðir og halda trúnni þangað til á síðustu mínútu. Nú er það auðvitað staðfest að þetta er búið. Það er erfitt en svona er þetta.“ Fáir möguleikar Er eitthvað sem þú getur nefnt sérstaklega sem fór úrskeiðis á tímabilinu? „Við skulum segja að við höfum ekki haft marga möguleika, við höfðum ekki marga möguleika, ef við hefðum haft aðeins fleiri möguleika held ég að þetta hefði verið auðveldara“, sagði Linta og á þar líklega við að hafa ekki úr stórum leikmannahóp að ráða. „Ég talaði við strákann fyrir leikinn og var mjög ánægður með hvernig þeir hafa æft. Þetta er mjög góður hópur af strákum sem leggja hart að sér og ég held þeirra vegna að þeir hafi átt aðeins meira skilið því við áttum nokkra leiki, ekki í dag, en við áttum nokka leiki þar sem við spiluðum mjög vel en fengum ekkert út úr. Ég held að strákarnir hafi átt fleiri stig skilið en svona er þetta.“ 50-50 atriði falli aldrei með liðinu Í stöðunni 0-0 í fyrri hálfleik lentu Aron Birkir Stefánsson í marki Þórs og Aron Lucas Vokes leikamður ÍBV saman þegar Vokes var að hlaupa í átt að marki Þórs og virtist Vokes ná snertingu á boltann áður en Aron Birkir lenti á honum. Ekkert var dæmt i þessu atviki en Linta var ósáttur með. „Til að segja sannleikann þá höfum við lent í mörgum svona atvikum, svona 50-50 atvikum, á tímabilinu þar sem í mörgum atvikum var ekki dæmt okkur í hag og þetta er eitt af þeim atvikum. Ég læt staldra við það.“ Ertu ósáttur með dómgæsluna í dag? „Já, kannski þetta augnablik en ég held að þetta augnablik hafi ekki haft úrslitaáhrif á leikinn. Eins og ég sagði þér er ég bara örlítið ósáttur því í öllum þessum 50-50 atvikum í sumar fengum við ekki neinar af þeim. Þetta er eitt af þeim atvikum og þetta eru margir leikir. Stjarnan úti og margir leikir. FH og margir leikir.“ ÍBV á eftir heimaleik við FH og útileik við KA og þarf því að ferðast aftur til Akureyrar í leik sem skiptir þá engu máli en gæti haft úrslitaáhrif á hvaða lið fellur þegar uppi er staðið. „Auðvitað munum við þurfa að leysa úr þessu ástandi núna á næstu einum til tveimur dögum en svo þurfum við að koma til baka aftur, koma okkur aftur á fætur. Þessir leikir skipta ekki máli en við munum reyna að spila eins vel og við getum og reyna ef mögulegt er að vinna þessa leiki.“ „Þú verður að haga þér eins og atvinnumaður og eins og ég sagði þér eru strákarnir að gera það. Við munum í það minnsta koma með fína frammistöðu og setja mikla orku í þetta hvort sem við erum fallnir eða ekki. Það er það sem ég trúi og er sanngjarnt fyrir fótboltann.“
Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla ÍBV Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Fram - KR | Hörð barátta um annað sætið Íslenski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn Fleiri fréttir „Við ætlum að vinna rest“ Fram - KR | Hörð barátta um annað sætið Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Sjá meira